Hinn 31. janúar sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 65 kvartanir frá áramótum og hann hafði á sama tíma tekið eitt mál til athugunar að eigin frumkvæði.
Á sama tíma árið 2011 höfðu umboðsmanni borist 32 kvartanir og hann hafði tekið upp eitt frumkvæðismál. Málum hefur því fjölgað um 103% miðað við sama tíma í fyrra.
Í janúar 2012 lauk umboðsmaður athugun sinni á 44 málum. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 66 talsins. Um mánaðamótin janúar-febrúar voru alls 179 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 125 mál til athugunar. Þá bárust 32 kvartanir og athugun var lokið á 9 málum í janúar 2011.