Hinn 29. febrúar sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 124 kvartanir frá áramótum og hann hafði á sama tíma tekið eitt mál til athugunar að eigin frumkvæði.
Á sama tíma árið 2011 höfðu umboðsmanni borist 69 kvartanir og hann hafði tekið upp eitt frumkvæðismál. Málum hefur því fjölgað um 79,7% miðað við sama tíma í fyrra.
Í febrúar 2012 lauk umboðsmaður athugun sinni á 41 máli. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 59 talsins. Um mánaðamótin febrúar-mars voru alls 197 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 127 mál til athugunar. Þá bárust 38 kvartanir og athugun var lokið á 36 málum í febrúar 2011.