Hinn 31. mars sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 184 kvartanir frá áramótum og hann hafði á sama tíma tekið eitt mál til athugunar að eigin frumkvæði.
Á sama tíma árið 2011 höfðu umboðsmanni borist 121 kvörtun og hann hafði tekið upp þrjú frumkvæðismál. Málum hefur því fjölgað um 52% miðað við sama tíma í fyrra.
Í mars 2012 lauk umboðsmaður athugun sinni á 51 máli. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 60 talsins. Um mánaðamótin mars-apríl voru alls 206 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 140 mál til athugunar. Þá bárust 52 kvartanir og athugun var lokið á 39 málum í mars 2011.