A kvartaði yfir lögum um kílómetragjald.
Þar sem kvörtunin laut að lagasetningu Alþingis og þar sem ekki lá fyrir ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beindist sérstaklega að A eða varðaði beinlínis hagsmuni A eða réttindi umfram aðra, voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar. Umboðsmaður benti á að álagning kílómetragjalds væri kæranleg til ríkisskattstjóra og að kæra mætti úrskurð ríkisskattstjóra til yfirskattanefndar. Ekki væru skilyrði til að kvarta til umboðsmanns fyrr en málið hefði verið lagt í þann kærufarveg.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. janúar 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 7. janúar sl. sem lýtur að lögum um kílómetragjald á ökutæki sem samþykkt voru á Alþingi 18. desember 2025. Í kvörtuninni eru rakin sjónarmið sem lúta meðal annars að framkvæmd laganna og samspili þeirra við lög nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn. Þá telur þú að þá gjaldtöku, sem lögin muni koma til með að hafa í för með sér, verði að taka til endurskoðunar í ljósi tiltekinna atriða, sem eru nánar rakin í kvörtuninni.
Í tilefni af kvörtun þinni tek ég fram að samkvæmt a-lið 4. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns ekki til starfa Alþingis og stofnana þess. Það er því almennt ekki á verksviði umboðsmanns Alþingis að taka afstöðu til þess hvernig til hefur tekist með löggjöf sem Alþingi hefur sett. Ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að ég fæ ekki annað ráðið af kvörtun þinni að hún lúti öðru fremur að því hvernig Alþingi ákveðið að lög um kílómetragjald á ökutæki skuli vera.
Þá tel ég rétt að taka fram að meginviðfangsefni umboðsmanns er að taka við kvörtunum frá borgurunum og láta þeim í té álit um það hvort stjórnvöld hafi leyst með réttum hætti úr máli þeirra. Til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann verður því almennt að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra.
Í kvörtun þinni eru sem fyrr segir sett fram sjónarmið um framkvæmd laga um kílómetragjald á ökutæki og tiltekin lagaleg álitamál sem þú telur vera fyrir hendi. Með hliðsjón af því og kvörtuninni að öðru leyti verður ekki séð að á þessu stigi liggi fyrir tiltekin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þér. Af þessum sökum eru ekki uppfyllt lagaskilyrði til þess að kvörtunin verði tekin til frekari meðferðar.
Í þessu sambandi bendi ég á að álagning kílómetragjalds er samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laganna kæranleg til ríkisskattstjóra innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningar þar um. Samkvæmt 3. mgr. sömu greinar er svo heimilt að bera úrskurð ríkisskattstjóra þar um, endurákvörðun hans samkvæmt 20. gr. laganna og ákvörðun um sektir samkvæmt 24. gr., undir yfirskattanefnd, en ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. fyrrgreindra laga um störf umboðsmanns er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu.
Með hliðsjón af öllu framangreindu og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, læt ég málinu hér með lokið af minni hálfu. Fari svo að þú leggir málið í þann kærufarveg sem að framan er rakinn, er þér velkomið að leita til mín á nýjan leik að fenginni endanlegri niðurstöðu yfirskattanefndar, teljir þú tilefni til.