Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Leiðrétting.

(Mál nr. 556/2025)

A kvartaði yfir töfum á meðferð og afgreiðslu Samgöngustofu á kvörtun vegna ágreinings við skoðunarstofu um framkvæmd og niðurstöðu skoðunar á ökutæki.

Í svari Samgöngustofu við fyrirspurn umboðsmanns um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins var upplýst um að ákvörðun hefði verið tekin í málinu í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns og kynnt A. Þá kom fram að Samgöngustofa ynni nú að úrbótum á afgreiðslutíma svipaðra mála. Lauk umboðsmaður því athugun sinni á málinu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. janúar 2026.

  

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 15. desember 2025 yfir því að engin viðbrögð hafi orðið vegna kvörtunar sem þú komst á framfæri við Samgöngustofu 12. september 2025 vegna ágreinings við skoðunarstofu um framkvæmd og niðurstöðu skoðunar á ökutæki þínu önnur en sjálfvirk staðfesting á móttöku kvörtunarinnar.

Í tilefni af kvörtuninni var Samgöngustofu ritað bréf 12. janúar sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvort kvörtunin hefði verið tekin til athugunar og þá hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Í svari Samgöngustofu 26. janúar sl. kemur fram að málinu hafi verið lokið. Svarinu fylgdi afrit af bréfi stofnunarinnar sama dag til þín þar sem tilkynnt var um ákvörðun hennar í málinu. Þá kemur fram að stofnunin vinni nú að úrbótum á afgreiðslutíma svipaðra mála.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu máls sem nú hefur verið lokið tel ég ekki ástæðu til aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Líkt og fram kemur í bréfi Samgöngustofu er þér fært að bera ákvörðun stofnunarinnar undir innviðaráðuneytið. Fari svo að þú leggir málið í þann farveg og sértu ósáttur við niðurstöðu ráðuneytisins getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar um.