A kvartaði yfir því að X hefði ekki raðað honum í rétt launaþrep samkvæmt fyrirmælum stofnanasamnings.
Þar sem ágreiningurinn laut einkum að túlkun og framkvæmd stofnanasamnings, sem er hluti kjarasamnings stéttarfélags A við ríkið, taldi umboðsmaður eðlilegra að dómstólar leystu úr honum. A gæti þó freistað þess að bera ágreining málsins að nýju undir samstarfsnefnd, sem færi með það hlutverk samkvæmt stofnanasamningnum að fjalla um röðun starfsmanna í launaflokka. Jafnframt var vakin athygli á þeim möguleika að beina athugasemdum um störf forstöðumanns og annars starfsfólk til þess ráðherra sem færi með yfirstjórn stofnunarinnar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. febrúar 2026.