Skipulags- og byggingarmál. Lokaúttekt byggingarfulltrúa. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 548/2025)

A kvartaði yfir lokaúttekt mannvirkis og málsmeðferð og eftirliti byggingarfulltrúa þar að lútandi.

Samkvæmt A hafði kæru vegna málsins verið beint til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en hún síðan dregin til baka. Þar sem ráðið varð að nefndin hefði ekki kveðið upp úrskurð sinn í málinu taldi umboðsmaður að skilyrði stæðu ekki til nánari umfjöllunar um kvörtunina.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. febrúar 2026.