Ríkisborgararéttur. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 94/2026)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu kæru vegna synjunar á umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt hjá dómsmálaráðuneytinu.

Í ljósi þess að ekki varð annað ráðið en að málið væri í farvegi hjá ráðuneytinu og í virkri vinnslu taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast vegna málsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. febrúar 2026.