Fangi kvartaði yfir framkomu starfsmanns fangelsis í sinn garð.
Þar sem ekki varð séð að leitað hefði verið fyrst til fangelsismálayfirvalda gat umboðsmaður ekki tekið kvörtunina til nánari umfjöllunar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. apríl 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 9. apríl sl. sem lýtur að framkomu starfsmanns Fangelsisins X. Nánar tiltekið lýtur kvörtunin bæði að ákveðnu atviki, þar sem þú segir viðkomandi starfsmann hafa synjað þér um aðgang að umslagi með peningum í þinni eigu, sem og framkomu starfsmannsins almennt í þinn garð og annarra [...] sem afplána í fangelsinu.
Af kvörtuninni verður ekki ráðið að þú hafir komið athugasemdum þínum formlega á framfæri við aðra en umboðsmann og fengið viðbrögð við þeim. Af því tilefni vil ég benda á að samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsinga, skipar forstjóri Fangelsismálastofnunar fangaverði auk þess sem sú stofnun hefur samkvæmt 5. gr. laganna umsjón með rekstri fangelsa. Þá fer dómsmálaráðherra samkvæmt 4. gr. sömu laga með yfirstjórn fangelsismála. Ástæða þess að ég bendi á þetta er sú að meðal skilyrða þess að umboðsmaður Alþingis geti tekið kvörtun til athugunar er að endanleg niðurstaða stjórnvalda í málinu liggi fyrir. Þetta leiðir af 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, og sjónarmiðum sem búa að baki því ákvæði um að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum, sem hugsanlega er ekki í samræmi við lög, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra, eins og umboðsmann Alþingis, með kvartanir. Að virtum þeim sjónarmiðum og í ljósi þess að þú getur leitað til framangreindra stjórnvalda með kvartanir þínar brestur lagaskilyrði til þess að kvörtun þín til mín verði tekin til frekari athugunar að svo stöddu. Kjósir þú að gera það og ef þú verður ekki sátt við niðurstöðu þeirra geturðu leitað til mín aftur.
Loks vil ég upplýsa að umboðsmaður Alþingis fer með svokallað OPCAT-eftirlit með aðstæðum frelsissviptra, þar á meðal fanga, á almennum grunni. Við eftirlitið verður höfð hliðsjón af þeim athugasemdum sem komið er á framfæri í kvörtun þinni til mín. Áréttað er að það hefur ekki áhrif á framangreinda niðurstöðu mína um að ekki séu skilyrði til að taka kvörtunina til frekari meðferðar að svo stöddu.
Með vísan til framangreinds lýk ég meðferð minni á kvörtuninni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.