Lögreglu- og sakamál. Meðferð ákæruvalds. Tafir við meðferð máls. Svör til umboðsmanns. Ábending.

(Mál nr. 191/2026)

A kvartaði yfir því að dregist hefði úr hömlu að gefa út ákæru í máli þar sem hann væri brotaþoli enda þótt ríkissaksóknari hefði lagt fyrir lögreglustjóra að ákæra í málinu. Þá laut kvörtunin jafnframt að því að erindum A varðandi framgang málsins hefði ekki verið svarað.  

Í skýringum til umboðsmanns kom fram að ákæra í málinu hefði verið birt og þingfesting þess stæði fyrir dyrum. Í ljósi þess taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni kvörtunarinnar.

Athugun málsins varð umboðsmanni þó tilefni til að senda lögreglustjóra ábendingu enda hafði vantað upp á í svarinu að upplýst væri um afdrif framangreindra erinda A. Af því tilefni var því beint til lögreglustjóra að gæta þess betur eftirleiðis að þau gögn og þær skýringar, sem umboðsmaður óskaði eftir, væru veittar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27 . apríl 2026.

  

   

Vísað er til kvörtunar þinnar yfir því að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi dregið óhæfilega að gefa út ákæru í sakamáli þar sem þú ert brotaþoli þrátt fyrir að ríkissaksóknari hafi lagt fyrir lögreglustjóra að ákæra þegar ákvörðun hins síðarnefnda var felld úr gildi 19. ágúst 2025. Laut kvörtunin jafnframt að því að erindum þínum um framgang umrædds máls hefði ekki verið svarað. Kvörtun þessi var 13. mars sl. klofin frá annarri kvörtun þinni sem er með málsnúmerið 278/2025.

Í tilefni kvörtunarinnar var lögreglustjóra ritað bréf 19. mars sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði hvort framangreind erindi þín hefðu borist lögreglustjóra og, ef svo væri, hvort þeim hefði verið svarað. Hefði þeim ekki verið svarað, var óskað skýringa á því hvers vegna ekki. Þá var þess jafnframt óskað að lögreglustjóri upplýsti hvernig meðferð málsins miðaði. Var þess óskað að svari lögreglustjóra fylgdu gögn, sem vörpuðu ljósi á framangreint, væri þeim til að dreifa.

Svar lögreglustjóra barst 14. apríl sl. en í því kemur meðal annars fram að málið hafi verið tekið til ákærumeðferðar 13. mars sl. en tæknilegir örðugleikar hafi staðið því í vegi að ákæra væri gefin út. Til stæði að hún yrði gefin út von bráðar. Í símtali starfsmanns míns við starfsmann lögreglustjóra fyrr í dag var upplýst að ákæran hefði verið birt ákærða 16. apríl sl. og til stæði að þingfesta málið í lok þess mánaðar.

Þar sem kvörtun þín lýtur að því að lögreglustjóri hafi ekki gefið út ákæru í fyrrgreindu sakamáli og nú liggur fyrir að úr því hefur verið bætt tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Þó er rétt að upplýsa að athugun mín á máli þínu varð mér tilefni til að senda lögreglustjóra hjálagða ábendingu. Hún breytir niðurstöðu málsins þó ekki. Lýk ég meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

   


   

Bréf umboðsmanns til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 27. apríl 2026.

   

Það tilkynnist hér með að ég hef lokið máli A með bréfi því, sem hér fylgir í ljósriti. Þrátt fyrir þær lyktir málsins, sem þar koma fram, hefur athugun mín á því orðið mér tilefni til að koma á framfæri eftirfarandi ábendingu og þá með það fyrir augum að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi þau atriði, sem í henni koma fram, í huga eftirleiðis.

Með bréfi 19. mars sl. til lögreglustjóra var óskað upplýsinga um hvernig meðferð máls A  miðaði en jafnframt um afdrif erinda hans til lögreglustjóra þar sem sömuleiðis var spurst fyrir um framgang málsins. Var þess nánar tiltekið óskað að upplýst yrði hvort slík erindi hefðu borist og, ef svo væri, hvort þeim hefði verið svarað og hefði þeim ekki verið svarað, að upplýst yrði hvers vegna ekki. Að síðustu var þess óskað að svari lögreglustjóra fylgdu gögn, sem vörpuðu ljósi á framangreint, væri þeim til að dreifa.

Svarbréf lögreglustjóra barst 14. apríl sl. Í því er framgangi málsins lýst og tekið fram að tæknilegir örðugleikar hafi valdið því að ekki hafi verið gefin út ákæra í málinu en það stæði þó til von bráðar. Svarinu fylgdu drög að ákæru og dagbók málsins í LÖKE. Um þann þátt fyrirspurnar umboðsmanns, sem laut að erindum A, sagði meðal annars að A væri í miklu sambandi við starfsfólk lögreglustjóra en oft og tíðum sendi hann mörg tölvuskeyti á mjög marga starfsmenn embættisins og erfitt væri að halda utan um hvort honum væri svarað vegna tilgreinds máls.

Af framangreindu leiðir að hvorki var upplýst í svari lögreglustjóra hvort umrædd erindi A hefðu borist né hvort þeim hefði verið svarað. Þá fylgdu engin gögn varðandi þennan þátt fyrirspurnarinnar. Tel ég rétt að beina því til lögreglustjóra að eftirleiðis verði betur að því gætt að þau gögn og þær skýringar, sem umboðsmaður Alþingis óskar eftir, verði veittar.