Mannanöfn. Kenninafn. Ættarnafn. Nafnbreyting. Skyldubundið mat.

(Mál nr. 12996/2024)

A kvartaði yfir úrskurði dómsmálaráðuneytisins þar sem staðfest var ákvörðun Þjóðskrár Íslands um að synja umsókn hennar um að taka upp kenninafnið X sem amma hennar hafði borið. Synjunin var reist á því að A gæti ekki leitt rétt sinn til nafnsins af 5. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn. Þá væri óheimilt að taka upp ný ættarnöfn hér á landi samkvæmt 7. mgr. 8. gr. laganna. Athugun umboðsmanns var afmörkuð við þá lögskýringu ráðuneytisins að Þjóðskrá Íslands hefði ekki borið að leggja mat á hvort gildar ástæður, í skilningi 16. gr. laganna, hefðu mælt með því að heimila A að taka upp ættarnafnið.

Umboðsmaður taldi ljóst, einkum af lögskýringargögnum að baki 16. gr. laga nr. 45/1996 og samsvarandi ákvæði eldri laga, að í 16. gr. gæti ekki falist heimild til að víkja frá skýru banni 7. mgr. 8. gr. við því að tekin væru upp ný ættarnöfn hér á landi. Þar sem fyrir lá að ættarnafnið X væri og hefði lengi verið borið af fjölda einstaklinga hér á landi taldi umboðsmaður aftur á móti að bannið ætti ekki við um það.

Umboðsmaður tók fram að ættarnöfn teldust til kenninafna og að skilyrði 16. gr. væru þau að umsækjandi væri eldri en 18 ára og að telja yrði að gildar ástæður mæltu með upptöku nýs kenninafns. Þá benti umboðsmaður á að yrði afstaða ráðuneytisins lögð til grundvallar væri matskennd undantekningarregla 16. gr. að verulegu leyti þýðingarlaus hvað ættarnöfn snerti og í mótsögn við orðalag ákvæðisins, enda hefði sá sem uppfyllti skilyrði 5. mgr. 8. gr. þegar rétt til nafnsins á þeim grundvelli.

Því var niðurstaða umboðsmanns að skýra bæri 16. gr. laga nr. 45/1996 til samræmis við 8. gr. þeirra þannig að ákvæðið fæli í sér heimild fyrir Þjóðskrá Íslands til að leyfa manni að taka upp ættarnafn, að undangengnu mati á skilyrðum ákvæðisins, þótt hann gæti ekki leitt rétt sinn til nafnsins af 5. mgr. 8. gr. laganna. Það ætti þó ekki við um nafn sem teldist sannanlega nýtt ættarnafn hér á landi.

Þar sem mat á skilyrðum 16. gr. fór ekki fram í máli A var það niðurstaða umboðsmanns að úrskurður dómsmálaráðuneytisins hefði ekki verið í samræmi við lög.

   

Umboðsmaður lauk málinu með áliti 22. júlí 2026.

  

   

I Kvörtun og afmörkun athugunar

Hinn 5. nóvember 2024 leitaði A til umboðsmanns Alþingis með kvörtun yfir úrskurði dómsmálaráðuneytisins frá 17. nóvember 2023. Með úrskurðinum staðfesti ráðuneytið ákvörðun Þjóðskrár Íslands frá 20. febrúar 2023 þess efnis að synja umsókn A um að taka upp kenninafnið X svo að fullt nafn hennar yrði AX.

Með hliðsjón af þeim málsatvikum sem að neðan greinir og skýringum dómsmálaráðuneytisins hefur athugun mín verið afmörkuð við þá lögskýringu ráðuneytisins að við mat á umsókn A um nafnbreytingu hafi Þjóðskrá Íslands ekki borið að leggja mat á hvort gildar ástæður, í skilningi 16. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, hafi mælt með því að heimila henni að taka upp það kenninafn sem hún óskaði. Er sú afstaða ráðuneytisins byggð á því að 16. gr. laga nr. 45/1996 feli ekki í sér heimild til að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi í andstöðu við 7. mgr. 8. gr. laganna eða ættarnafn sem viðkomandi eigi ekki rétt til á grundvelli 5. mgr. 8. gr. þeirra.

  

II Málavextir

Samkvæmt gögnum málsins sótti A um breytingu á nafni sínu með umsókn til Þjóðskrár Íslands 19. febrúar 2023. Með umsókninni óskaði hún þess að taka upp kenninafnið X þannig að fullt nafn hennar yrði AX. Í rökstuðningi A sem fylgdi umsókninni kom fram að amma hennar hefði borið ættarnafnið X og að hún vildi taka upp ættarnafn hennar. Hún hefði búið hjá henni ásamt móður sinni alla sína barnæsku og fram á fullorðinsár. Þá kærði hún sig ekki um að bera föðurnafn sitt af nánar tilgreindum ástæðum. Daginn eftir, 20. febrúar 2023, synjaði Þjóðskrá umsókn A. Í ákvörðuninni sagði meðal annars svo:

Um rétt til að bera ættarnafn segir í 5. mgr. 8. gr. mannanafnalaga nr. 45/1996: Maður, sem samkvæmt þjóðskrá ber ættarnafn við gildistöku þessara laga eða bar ættarnafn í gildisíð laga nr. 37/1991, má bera það áfram. Sama gildir um niðja hans hvort heldur er í karllegg eða kvenlegg.

Þú tekur fram í umsókn þinni að þú sækir ættarnafnið [X] til móðurömmu þinnar en hún lést árið 1990. Þar sem að hún var látin fyrir gildistöku mannanafnalaga frá 1991 þá er þér ekki heimilt að taka nafnið upp sem kenninafn og er beiðni þinni hafnað.

A kærði ákvörðun Þjóðskrár til dómsmálaráðuneytisins 3. maí 2023. Í kærunni er greint frá þeim ástæðum sem bjuggu að baki umsókn hennar um nafnbreytingu með ítarlegum hætti. Færði hún fram sjónarmið um tengsl sín við móðurömmu sína sem bar ættarnafnið X en meðal annars er rakið að A hafi frá fæðingu búið með ömmu sinni til ársins 1990 þegar hún féll frá eða í hartnær 20 ár. Hafi amma hennar gegnt veigamiklu hlutverki í lífi og uppeldi hennar. Þá er greint frá ástæðum þess að A hugnist ekki að bera áfram föðurnafn sitt.

Með úrskurði dómsmálaráðuneytisins 17. nóvember 2023 var ákvörðun Þjóðskrár staðfest. Í úrskurðinum segir að samkvæmt 8. gr. laga nr. 45/1996 séu kenninöfn tvenns konar, föður- eða móðurnöfn og ættarnöfn. Þá felist í 5. mgr. 8. gr. laganna að hver maður skuli kenna sig til föður eða móður nema hann eigi rétt á að bera ættarnafn og kjósi að gera svo. Tekið er fram að samkvæmt því ákvæði sé manni sem bar ættarnafn við gildistöku laganna eða bar ættarnafn í gildistíð eldri laga nr. 37/1991 heimilt að bera það áfram. Sama gildi um niðja hans hvort heldur er í karllegg eða kvenlegg. Manni væri enn fremur heimilt að kenna sig til beggja foreldra sinna eða bera ættarnafn sem hann eigi rétt á til viðbótar því að kenna sig til föður eða móður. Síðan sagði svo:

Fyrir liggur að [A] er ekki niðji einstaklings sem bar ættarnafnið [X] í gildistíð núgildandi mannanafnalaga né í gildistíð eldri laga frá árinu 1991, en amma [A] lést árið 1990 líkt og fram hefur komið. Uppfyllir [A] þannig ekki skilyrði 5. mgr. 8. gr. mannanafnalaga til að bera kenninafnið [X]. Í ljósi framangreinds telur ráðuneytið að lagaskilyrði skorti til að verða við beiðni [A].

Taldi ráðuneytið því rétt að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

  

III Skýringar dómsmálaráðuneytisins

Í tilefni af kvörtun A voru dómsmálaráðuneytinu rituð bréf 20. nóvember 2024 og 11. mars 2025 þar sem þess var óskað að ráðuneytið afhenti afrit af öllum gögnum málsins og léti umboðsmanni í té tilteknar skýringar. Með hliðsjón af því að í 16. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, segði að Þjóðskrá Íslands væri heimilt að leyfa manni eldri en 18 ára að taka upp nýtt kenninafn ef telja yrði að gildar ástæður mæltu með því, var þess óskað að ráðuneytið upplýsti hvort það teldi að Þjóðskrá hefði borið að taka afstöðu til þess hvort gildar ástæður, í skilningi ákvæðisins, hefðu mælt með því að leyfa A að taka upp kenninafnið X. Teldi ráðuneytið að ekki hefði verið tilefni fyrir Þjóðskrá að leggja mat á þetta atriði var þess óskað að gerð yrði grein fyrir þeim lagasjónarmiðum sem þar byggju að baki.

Í svarbréfi ráðuneytisins 15. apríl 2025 segir meðal annars að um upptöku ættarnafns sem einstaklingur eigi rétt til sé fjallað í 5. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, en samkvæmt því megi maður sem samkvæmt þjóðskrá bar ættarnafn við gildistöku laganna eða bar ættarnafn í gildistíð laga nr. 37/1991, bera það áfram. Sama gildi um niðja hans hvort heldur er í karllegg eða kvenlegg. Í ákvæðinu felist tvenns konar áskilnaður. Annars vegar að ættarnafn hafi verið skráð í þjóðskrá við ákveðið tímamark, þ.e. við gildistöku laga nr. 45/1996 eða í gildistíð laga nr. 37/1991, og að sá sem óski þess að taka upp ættarnafnið sé niðji manns sem það bar samkvæmt skráningu í þjóðskrá við fyrrgreint tímamark. Líti ráðuneytið svo á að löggjafinn hafi með þessu sett skýrar reglur um upptöku ættarnafna hér á landi og einkum í þeim tilgangi að vernda hinn íslenska kenninafnasið.

Um afstöðu ráðuneytisins til þess hvort það teldi að Þjóðskrá hefði borið að taka afstöðu til þess hvort gildar ástæður, í skilningi 16. gr. laga nr. 45/1996, hefðu mælt með því að leyfa A að taka upp kenninafnið X segir meðal annars svo:

Að baki þeirri afstöðu ráðuneytisins að heimild 16. gr. laga um mannanöfn til að taka upp nýtt kenninafn feli ekki í sér að heimilt sé á grundvelli ákvæðisins að taka upp nýtt ættarnafn eða ættarnafn sem viðkomandi á ekki rétt til, búa nánar tiltekið þau lagasjónarmið að löggjafinn hafi, einkum með 5. og 7. mgr. 8. gr. laganna, þegar sett skýrar reglur um upptöku ættarnafns og í lögmætum tilgangi. Að áliti ráðuneytisins verður ekki með 16. gr. laganna vikið frá þeim lagaákvæðum og þá um leið þeim takmörkunum sem þau fela í sér og ætlunin var að giltu um upptöku ættarnafna. Þá gefa lögskýringargögn ekki til kynna að ætlunin hafi verið að 16. gr. laga um mannanöfn yrði beitt á þann veg.

Þar sem 16. gr. laga um mannanöfn felur ekki í sér heimild til að taka upp nýtt ættarnafn eða ættarnafn sem viðkomandi á ekki rétt til telur ráðuneytið að Þjóðskrá Íslands hafi ekki borið nauðsyn til að taka afstöðu til þess hvort ákvæðið ætti við í máli A.

A kom á framfæri athugasemdum við skýringar dómsmálaráðuneytisins 2. maí 2025.

  

IV Athugun umboðsmanns

1 Rétturinn til nafns samkvæmt stjórnarskrá

Í 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 er kveðið á um að allir skuli njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Þrátt fyrir það má með sérstakri lagaheimild takmarka þau réttindi sem greinin verndar ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra, sbr. 3. mgr. greinarinnar. Friðhelgi einkalífs nýtur einnig verndar 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. 1. gr. laga nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu. Lagt hefur verið til grundvallar að skýra beri 71. gr. stjórnarskrárinnar í ljósi 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og dómaframkvæmdar mannréttindadómstóls Evrópu, sbr. dóm Hæstaréttar 11. október 2023 í máli nr. 32/2023.

Í dómaframkvæmd mannréttindadómstólsins hefur því verið slegið föstu að rétturinn til nafns sé verndaður af 1. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. til dæmis dóma dómstólsins 22. febrúar 1994 í máli Burghartz gegn Sviss, nr. 16213/90 og 5. desember 2013 í máli Kismoun gegn Frakklandi, nr. 32265/10. Þá hefur í dómaframkvæmd hér á landi verið byggt á því að rétturinn til nafns njóti verndar 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, eins og ákvæðið verður túlkað með hliðsjón af 8. gr. mannréttindasáttmála, sbr. dóm Landsréttar 20. mars 2025 í máli nr. 901/2023. Þetta hefur einnig verið lagt til grundvallar í álitum umboðsmanns Alþingis, sbr. til dæmis álit umboðsmanns Alþingis 25. maí 2021 í máli nr. 10110/2019.

Hvers konar takmarkanir á réttinum til nafns, þar með talið kenninafns, sem nýtur þeirrar stjórnskipulegu verndar sem að framan greinir, þurfa að vera reistar á skýrri heimild í settum lögum og þarf brýna nauðsyn að bera til vegna réttinda annarra, sbr. 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Í vissum tilvikum getur 71. gr., eins og hún verður skýrð til samræmis við 8. gr. mannréttindasáttmálans, einnig lagt jákvæðar skyldur á íslenska ríkið til að grípa til aðgerða til þess að tryggja að réttindi þau sem mælt er fyrir um í ákvæðinu verði raunhæf og virk í reynd.

Af dómaframkvæmd mannréttindadómstólsins má ráða að brot gegn 8. gr. mannréttindasáttmálans geti falist í því að viðkomandi ríki hafi ekki sinnt þeirri athafnaskyldu sinni að haga löggjöf og réttarframkvæmd í samræmi við ákvæðið. Við mat á því hvenær jákvæð athafnaskylda hvílir á aðildarríki samkvæmt 1. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmálans til þess að tryggja þau réttindi sem sáttmálinn verndar hefur mannréttindadómstóllinn lagt til grundvallar að finna verði eðlilegt jafnvægi milli almannahagsmuna annars vegar og hagsmuna einstaklings hins vegar af því að ríkið grípi til sérstakra aðgerða til að tryggja honum réttindi samkvæmt sáttmálanum. Við það mat hafa aðildarríkin ákveðið svigrúm.

Í tilvikum sem lúta að beiðni um breytingu á nafni er svigrúm aðildarríkja verulegt, sbr. fyrrnefndan dóm mannréttindadómstólsins í máli Kismoun gegn Frakklandi og dóm 25. júní 2019 í máli Aktas og Aslaniskender gegn Tyrklandi, nr. 18684/07 og 21101/07. Ákvörðunarferlið verður þó að vera sanngjarnt, byggt á skýrum lagagrundvelli og taka tilhlýðilegt tillit til þeirra hagsmuna einstaklingsins sem njóta verndar 8. gr. sáttmálans, sbr. dóm mannréttindadómstólsins 21. október 2008 í máli Güzel Erdagöz gegn Tyrklandi, nr. 37483/02 og 17. febrúar 2011 í máli Golemanova gegn Búlgaríu, nr. 11369/04, einkum þeirra sem lúta að sjálfsmynd. Í því felst þá meðal annars að taka verður tillit til sérstakra og persónulegra aðstæðna hvers og eins og þeirra röksemda sem þeir færa fram fyrir beiðni sinni um nafnbreytingu, sbr. fyrrnefndan dóm í máli Aktas og Aslaniskender gegn Tyrklandi. Verður að hafa framangreint í huga við túlkun á ákvæðum þeim sem varða breytingu á nafni samkvæmt lögum nr. 45/1996.

    

2 Heimild til breytinga á kenninöfnum

Með lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, hefur Alþingi sett reglur um hvers konar nöfn eru leyfð hér á landi, hvernig þau skuli nánar úr garði gerð og hvernig og að hvaða marki heimilt er að gera breytingar á þeim.

Fullt nafn manns er eiginnafn eða eiginnöfn, millinafn, ef því er að skipta, og kenninafn, sbr. 1. mgr. 1. gr. laganna. Um kenninöfn er nánar fjallað í IV. kafla þeirra. Kenninöfn eru tvenns konar, annars vegar föður- eða móðurnöfn og hins vegar ættarnöfn, sbr. 1. mgr. 8. gr. Hver maður skal kenna sig til föður eða móður nema hann eigi rétt á að bera ættarnafn og kjósi að gera svo, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Manni er enn fremur heimilt að kenna sig til beggja foreldra sinna eða bera ættarnafn sem hann á rétt á til viðbótar því að kenna sig til föður eða móður, sbr. 2. málslið 2. mgr. 8. gr. laganna.

Um ættarnafn sem maður „á rétt á“ í framangreindum skilningi er fjallað í 5. mgr. 8. gr. laganna. Þar kemur fram að maður, sem samkvæmt þjóðskrá ber ættarnafn við gildistöku laga nr. 45/1996 eða bar ættarnafn í gildistíð laga nr. 37/1991, megi bera það áfram og gildir hið sama um niðja hans. Sérstaklega er tekið fram að óheimilt sé að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi í 7. mgr. 8. gr. Síðastnefnda ákvæðið er efnislega samhljóða 4. mgr. 9. gr. eldri laga nr. 37/1991.

Í VI. kafla laga nr. 45/1996 eru ákvæði sem lúta að nafnbreytingum en í máli þessu reynir einkum á 16. gr. laganna. Í ákvæðinu segir svo:

Þjóðskrá Íslands er heimilt að leyfa manni eldri en 18 ára að taka upp nýtt kenninafn ef telja verður að gildar ástæður mæli með því.

Í athugasemdum við 16. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 45/1996 kemur fram að greinin svari til 16. gr. eldri laga um mannanöfn, nr. 37/1991, og sé í raun efnislega óbreytt (Alþt. 1995-1996, A-deild, bls. 688). Ákvæði eldri laga var svohljóðandi:

Dómsmálaráðuneyti er heimilt að leyfa manni breytingu á kenninafni aðra en þá sem um getur í lögum þessum ef telja verður að gildar ástæður mæli með því.

Samkvæmt þessu voru gerðar nokkrar orðalagsbreytingar á 16. gr. með lögum nr. 45/1996. Hér er helst til þess að líta að samkvæmt orðalagi lagaákvæðisins felur það í sér heimild til að leyfa manni að „taka upp nýtt kenninafn“ í stað þess að leyfa manni „breytingu á kenninafni aðra en þá sem um getur í lögum þessum“ eins og orðalagið var fyrir. Ekki verður ráðið af lögskýringargögnum hver ástæða þessara breytinga hafi verið. Í athugasemdum við lagagreinina kemur hins vegar fram að rétt þyki að ákvæðið verði túlkað þröngt. Þá eru rakin dæmi um gildar ástæður samkvæmt greininni en um það segir svo:

Sé kenninafn mjög fátítt kann að standa svo á að það sé sérstaklega tengt þekktum afbrotamanni í hugum almennings og er þá auðsæilega gild ástæða til að heimila þeim sem það ber kenninafnsbreytingu. Einnig geta fátíð kenninöfn verið svo klaufaleg eða jafnvel niðrandi að menn líði beinlínis fyrir að bera þau, en í slíkum tilvikum virðist þó eðlilegt að leitað sé umsagnar mannanafnanefndar áður en breytingin er heimiluð, sbr. ákvæði 3. mgr. 5. gr. um ama sem mannanafnanefnd úrskurðar um. Það kann og að vera sanngjarnt og réttmætt að leyfa manni að kenna sig til stjúp- eða fósturforeldris þegar þannig stendur á að hann hefur lítil sem engin samskipti haft við kynforeldri sitt. Slíkt leyfi yrði að sjálfsögðu háð samþykki stjúp- eða fósturforeldris ef unnt væri að afla þess. Ekki eru sjáanleg rök fyrir því að heimila t.d. 15 ára barni að kenna sig til stjúpforeldris skv. 3. mgr. 14. gr. en ekki 17 ára ungmenni á grundvelli 16. gr. (Alþt. 1995-1996, A-deild, bls. 688).

Í athugasemdum við 16. gr. í frumvarpi því sem varð að eldri lögum nr. 37/1991, sem 16. gr. núgildandi laga byggist samkvæmt framangreindu á, kom fram að reynst gæti æskilegt að heimila breytingu á kenninafni af öðrum ástæðum en fram komi í öðrum greinum frumvarpsins. Þá gætu átt við svipaðar ástæður og raktar væru í athugasemd um 7. gr. frumvarpsins þar sem kveðið var á um breytingar eiginnafns. Því hafi verið í 16. gr. lagt til að lögfest yrðu svipuð ákvæði um breytingu kenninafns og um breytingu eiginnafns. Tekið var fram að slík breyting á kenninafni gæti þó ekki falist í upptöku nýs ættarnafns (Alþt. 1990-1991, A-deild, bls. 624). Í athugasemdum við 7. gr. frumvarpsins um heimild dómsmálaráðuneytisins til að leyfa manni nafnbreytingu segir meðal annars:

Þótt það sé meginstefna þessa frumvarps að þeirri íslensku venju sé haldið að menn beri sama nafn alla ævi þykir engu að síður rétt að heimila undantekningu frá reglunni um nafnfestu í þeim tilvikum að nafn teljist vera manni til ama eða um sé að ræða sérstakar ástæður sem ríkar geta talist. Hér getur verið um ýmislegt að ræða. Einfaldasta dæmið er um nöfn sem eru svo klaufaleg að menn líða fyrir þau, t.d. sakir stríðni eða vegna þess að út úr þeim er snúið eða þau afbökuð. Þá kann að felast í eiginnöfnum tenging við aðila sem er nafnbera til ama, t.d. sakir óvináttu, eða ef sá sem nafnið er tekið eftir er þekktur brotamaður eða hefur illt orð á sér. Á yfirborðinu kunna ástæður sem þessar að sýnast léttvægar í ýmsum dæmum, en hafa verður í huga að hér gætir oft mikilla tilfinninga sem æskilegt getur verið að tekið sé tillit til. Ógerlegt er að setja nákvæmar reglur um þetta efni og verður því að leggja það á dómsmálaráðuneytið að meta hvert tilvik fyrir sig (Alþt. 1990-1991, A-deild, bls. 620).

  

3 Heimild Þjóðskrár til að leyfa manni að taka upp nýtt kenninafn

Athugun mín á málinu hefur lotið að þeirri lögskýringu sem dómsmálaráðuneytið byggði á í máli A, þess efnis að ekki hafi verið þörf á að leggja mat á hvort gildar ástæður, í skilningi 16. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, hafi mælt með því að leyfa henni að taka upp ættarnafnið X, þar sem hún gæti ekki leitt rétt sinn til nafnsins af 5. mgr. 8. gr. laganna auk þess sem óheimilt sé að taka upp ný ættarnöfn hér á landi, sbr. 7. mgr. 8. gr. þeirra.

Samkvæmt orðalagi 16. gr. laga nr. 45/1996 er Þjóðskrá Íslands heimilt að leyfa manni eldri en 18 ára að taka upp nýtt kenninafn ef telja verður að gildar ástæður mæli með því. Ættarnöfn teljast til kenninafna, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna. Með hliðsjón af því er álitaefnið hvort það mat sem Þjóðskrá er fengið með 16. gr. laganna, eins og greinin verður skýrð með hliðsjón af 8. gr. þeirra, veiti stofnuninni heimild til að leyfa manni að taka upp ættarnafn þótt hann geti ekki leitt þann rétt af 5. mgr. 8. gr. laganna.

Ég tel í fyrsta lagi rétt að víkja að því hvernig 7. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996, þar sem lagt er bann við upptöku nýrra ættarnafna hér á landi, horfir við því álitamáli sem er hér til úrlausnar. Af athugasemdum í lögskýringargögnum með 16. gr. laga nr. 45/1996 og laga nr. 37/1991 er ljóst að ætlunin var ekki að veita heimild til að taka upp ný ættarnöfn hér á landi. Þannig segir í athugasemdum um 16. gr. í frumvarpi til eldri laga nr. 37/1991 að „slík breyting á kenninafni [geti] þó ekki falist í upptöku nýs ættarnafns, sbr. 4. mgr. 9. gr.“ (Alþt. 1990-1991, A-deild, bls. 624). Ég bendi á að þágildandi 4. mgr. 9. gr. er samhljóða 7. mgr. 8. gr. núgildandi laga um að óheimilt sé að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi.

Í ljósi framangreinds tel ég því að ekki fari á milli mála að í 16. gr. laga nr. 45/1996 getur ekki falist heimild til að víkja frá skýru banni 7. mgr. 8. gr. laganna við því að tekin séu upp ný ættarnöfn hér á landi. Aftur á móti tel ég að annað eigi við um rótgróin ættarnöfn sem eru skráð í þjóðskrá og teljast því ekki eðli málsins samkvæmt til nýrra ættarnafna í skilningi 7. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996. Þannig er ekki hægt að líta svo á að bann samkvæmt 7. mgr. 8. gr. eigi við um ættarnafnið X enda liggur fyrir að það sé nú borið og hafi verið borið af fjölda einstaklinga hér á landi um langt skeið.

Í öðru lagi er nauðsynlegt að kanna nánar samspil 5. mgr. 8. gr. og 16. gr. laga nr. 45/1996. Dómsmálaráðuneytið hefur, eins og áður segir, lagt til grundvallar að heimild Þjóðskrár samkvæmt 16. gr., til að leyfa manni eldri en 18 ára að taka upp nýtt kenninafn ef telja verður að gildar ástæður mæli með því, hafi ekki átt við í máli A þar sem hún hafi ekki getað leitt rétt sinn til ættarnafnsins X af 5. mgr. 8. gr. laganna.

Af forsögu 16. gr. laga nr. 45/1996 tel ég ljóst að röksemdirnar að baki því að fela stjórnvöldum þá matskenndu heimild sem felst í ákvæðinu hafi verið að æskilegt og nauðsynlegt geti verið að heimila slíka breytingu þar sem erfitt sé að sjá fyrir öll þau tilvik sem varða persónulega hagsmuni fólks. Þjóðskrá hefur þó ekki óheft mat heldur verður stofnunin að reisa ákvarðanir sínar á málefnalegum og forsvaranlegum sjónarmiðum sem standa í efnislegum tengslum við markmið laganna. Ljóst er að markmið laganna er ekki einungis bundið við það að tryggja allsherjarréttarlega hagsmuni, eins og nafnfestu í þágu auðkenningar og almannaskráningar, vernd íslensks málkerfis og varðveislu kenninafnasiðar, heldur einnig persónulega hagsmuni og réttindi sem eru tengd nöfnum manna. Þá tel ég ljóst af samhengi þeirrar athugasemdar við 16. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 45/1996, um að rétt þyki að ákvæðið verði túlkað þröngt, að vísað sé til þess að nokkuð ríkar kröfur verði að gera til þeirra ástæðna sem beiðni um breytingu á kenninafni á þessum grundvelli byggist á fremur en að átt sé við að merking lagagreinarinnar sé þrengri en texti hennar gefur til kynna.

Þegar lög nr. 45/1996 eru virt í heild er ljóst að 8. gr. þeirra felur í sér meginreglur laganna um ættarnöfn. Þar er meðal annars sett fram fastmótuð regla um það hvenær maður á rétt á ættarnafni fyrir tilstuðlan ættartengsla og tekið fram að óheimilt sé að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi. Það fær því hins vegar ekki breytt að samkvæmt orðalagi 16. gr. laganna er Þjóðskrá Íslands heimilt að leyfa manni að taka upp nýtt kenninafn en samkvæmt fyrirmælum 1. mgr. 8. gr. rúmast ættarnöfn innan þess hugtaks. Einu efnislegu skilyrðin sem 16. gr. geymir eru að maður sé 18 ára og telja verði að gildar ástæður mæli með því að heimila upptöku nýs kenninafns.

Í þessu sambandi tel ég jafnframt rétt að benda á að yrði afstaða ráðuneytisins sem hefur komið fram í skýringum til mín lögð til grundvallar, þ.e. um að heimild 16. gr. laga nr. 45/1996 taki ekki til upptöku ættarnafns sem viðkomandi getur ekki leitt rétt sinn til samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laganna, væri hin matskennda undantekningarregla í 16. gr. að verulegu leyti þýðingarlaus hvað snertir ættarnöfn auk þess að vera í mótsögn við orðalag ákvæðisins. Ég bendi jafnframt á að sá sem uppfyllir skilyrði 5. mgr. 8. gr. á þegar rétt til að taka upp viðkomandi ættarnafn á grundvelli þess ákvæðis og hefur því enga þörf fyrir að leita sérstakrar heimildar Þjóðskrár Íslands samkvæmt 16. gr. laganna.

Í samræmi við lögmætisreglu stjórnsýsluréttar tel ég að túlkun á 16. gr. laga nr. 45/1996 samkvæmt orðalagi ákvæðisins samrýmist fyllilega texta lagaákvæðanna sem á reynir í þessu máli. Ég bendi á það er ekki á færi stjórnvalda að koma á fót takmörkunum á réttinum til nafns án þess að skýr lagaheimild standi til þess. Þá tel ég að túlkun á 16. gr. laga nr. 45/1996 samkvæmt orðanna hljóðan sæki stoð í og sé í betra samræmi við 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, eins og hún verður skýrð með hliðsjón af 1. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, með tilliti til þess að tryggja eðlilegt jafnvægi milli samfélagslegra hagsmuna af því að setja reglur um nöfn og einkahagsmuna fólks af því að velja sér nafn. Ég tek einnig fram að huga þarf að því mati sem þarf að fara fram til þess að íslenska ríkið gæti að athafnaskyldum sínum, sbr. fyrrnefndan dóm mannréttindadómstóls Evrópu í máli Aktas og Aslaniskender gegn Tyrklandi.

Í samræmi við framangreint tel ég að leggja beri orðalag 16. gr. laga nr. 45/1996 til grundvallar og skýra ákvæðið til samræmis við 8. gr. þeirra og þá þannig að 16. gr. veiti Þjóðskrá heimild til að leyfa manni að taka upp ættarnafn að undangengnu mati á tilteknum skilyrðum þrátt fyrir að hann geti ekki leitt rétt sinn til þess af 5. mgr. 8. gr. laganna. Ég árétta þó að þetta á ekki við um nafn sem telst sannanlega nýtt ættarnafn hér á landi, sbr. 7. mgr. 8. gr. laganna. Í framangreindu felst einnig að 16. gr. laganna kemur ekki til skoðunar séu skilyrði 5. mgr. 8. gr. uppfyllt.

Af framangreindu leiðir að berist Þjóðskrá umsókn frá einstaklingi sem er eldri en 18 ára þar sem óskað er heimildar til að taka upp ættarnafn kann það að falla í hlut stofnunarinnar að leggja mat á hvort gildar ástæður mæli með því að heimila upptöku ættarnafnsins á grundvelli 16. gr. laga nr. 45/1996. Nánar tiltekið þarf matið samkvæmt 16. gr. að fara fram þegar umsækjandi á ekki þegar rétt til ættarnafnsins á grundvelli 5. mgr. 8. gr. og þegar ekki er um að ræða nýtt ættarnafn hér á landi í skilningi 7. mgr. 8. gr. laganna. Þá verður mat Þjóðskrár að vera byggt á málefnalegum og forsvaranlegum sjónarmiðum. Í máli A fór framangreint mat ekki fram, þ.e. hvort gildar ástæður í skilningi 16. gr. hafi mælt með því að leyfa henni að taka upp ættarnafnið X.

Þar sem úrskurður dómsmálaráðuneytisins 17. nóvember 2023 í máli A, var ekki byggður á því mati samkvæmt 16. gr. laga nr. 45/1996 sem á að fara fram í samræmi við það sem rakið er hér að framan er það niðurstaða mín að hann hafi ekki verið í samræmi við lög.

  

V Niðurstaða

Það er niðurstaða mín að úrskurður dómsmálaráðuneytisins 17. nóvember 2023 í máli A hafi ekki verið í samræmi við lög. Sú niðurstaða er byggð á því að ekki hafi verið lagt mat á hvort gildar ástæður í skilningi 16. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, hafi mælt með því að heimila henni að taka upp ættarnafnið X.

Ég beini því til ráðuneytisins að taka mál A upp að nýju, komi fram ósk um það frá henni, og leysa þá úr því í samræmi við þau sjónarmið sem rakin eru í álitinu. Þá er því jafnframt beint til ráðuneytisins að taka framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem hér hafa verið rakin við úrlausn sambærilegra mála.