Kvartað var yfir viðbrögðum borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins við erindi þar sem óskað hafði verið eftir aðstoð þjónustunnar.
Í ljósi þess að ekki varð annað ráðið en að málið væri enn í vinnslu hjá ráðuneytinu og samskiptin enn að eiga sér stað taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast vegna málsins.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 31. júlí sl. Ég legg þann skilning í kvörtunina að hún lúti fyrst og fremst að viðbrögðum borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins við erindi þínu þar sem þú óskaðir eftir aðstoð ráðuneytisins vegna dóttur þinnar, en ég ræð meðal annars af kvörtuninni að mál sem snýr að aðstæðum hennar sé til meðferðar hjá dómstólum í X.
Samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk umboðsmanns að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og geta þeir, sem telja sig hafa verið beitta rangsleitni af hálfu þeirra, kvartað af því tilefni til umboðsmanns, sbr. 2. mgr. 4. gr. laganna.
Um skilyrði þess að umboðsmaður geti tekið kvörtun til nánari athugunar er fjallað í 6. gr. laga nr. 85/1997. Þar segir meðal annars í 3. mgr. að megi skjóta máli til æðra stjórnvalds sé ekki unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Að baki þessu ákvæði býr það sjónarmið að stjórnvöld skulu fyrst fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra eins og umboðsmanns Alþingis. Af þessu leiðir meðal annars að umboðsmaður fjallar almennt ekki um mál nema stjórnvöldum hafi fyrst verið gefinn kostur á að taka afstöðu til þeirra eða á meðan það er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum. Í samræmi við þetta þarf kvörtun til umboðsmanns að jafnaði að beinast að tiltekinni úrlausn eða háttsemi stjórnvalds og þær kæruleiðir, sem kunna að vera tiltækar innan stjórnsýslunnar, þurfa að hafa verið nýttar.
Ástæða þess að þetta er rakið er sú að af kvörtun þinni verður ekki annað ráðið en að þú hafir átt og eigir enn í viðvarandi samskiptum við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna máls dóttur þinnar og hafir meðal annars fengið leiðbeiningar um þær leiðir sem þér standa til boða í tengslum við mál hennar. Þú hafir þá í lok júlí sl. lýst yfir vonbrigðum yfir þeirri aðstoð sem þú hafir þegar fengið, auk þess að ítreka beiðni þína um frekari leiðbeiningar og aðstoð.
Í ljósi framangreinds fæ ég ekki annað ráðið en að mál dóttur þinnar sé enn til meðferðar hjá dómstólum í X og að samskipti þín við borgaraþjónustuna í tilefni af málinu standi enn yfir. Að svo stöddu tel ég mig því ekki hafa forsendur til að gera athugasemdir við viðbrögð ráðuneytisins við erindum þínum, sbr. jafnframt þau sjónarmið sem búa að baki 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997.
Með vísan til framangreinds lýk ég athugun minni á kvörtuninni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.