A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu umsóknar hans til Útlendingastofnunar, en rekja mátti tafirnar til þess að beðið væri niðurstöðu áreiðanleikakönnunar á tilteknu skjali hjá lögreglu.
Af hálfu umboðsmanns var vísað til þess að í þeim tilvikum þar sem óskað hefði verið upplýsinga um ástæður tafa í sambærilegum málum hefði komið í ljósi að þær væru af almennum toga en ekki bundnar við einstök mál sérstaklega. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til að taka kvörtunina til frekari athugunar. Hafði umboðsmaður þar jafnframt í huga að tafir við málsmeðferð Útlendingastofnunar vegna biðar eftir niðurstöðum áreiðanleikakannana hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefðu þegar verið teknar til athugunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 7. september sl. sem beinist að Útlendingastofnun og lýtur að töfum á afgreiðslu umsóknar þinnar um íslenskan ríkisborgararétt. Eftir því sem fram kemur í kvörtuninni mun stofnunin hafa tjáð þér, síðast í ágúst sl., að beðið sé niðurstöðu áreiðanleikakönnunar lögreglu á tilteknu skjali tengdu umsókninni.
Í upphafi tel ég rétt að vekja athygli á því að í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki gert ráð fyrir því að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald, hafa lokið umfjöllun sinni um það, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Af því leiðir meðal annars að almennt verður mál ekki tekið til meðferðar af hálfu umboðsmanns á grundvelli kvörtunar á meðan það er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Þegar umboðsmanni berast kvartanir vegna tafa á afgreiðslu mála og fyrir liggur að málið hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma hefur almennt, þrátt fyrir áðurnefnda reglu um að máli skuli hafa verið lokið innan stjórnsýslunnar, verið farin sú leið að spyrjast fyrir um hjá stjórnvaldinu hvað líði meðferð og afgreiðslu viðkomandi máls. Þetta hefur ekki síst verið gert til þess að greiða fyrir því að borgararnir fái sem fyrst afgreiðslu mála sinna enda hefur reyndin verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað valdi töfunum og hvenær ráðgert sé að afgreiða málið. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður athugun sinni á málinu. Umboðsmaður hefur hins vegar gætt varkárni gagnvart því að fjalla um og taka afstöðu til þess hvort málsmeðferð stjórnvalds hafi brotið í bága við málshraðareglu áður en málið hefur verið til lykta leitt.
Í þessu sambandi bendi ég á að við meðferð umboðsmanns á öðrum kvörtunum vegna tafa á afgreiðslu beiðna um áreiðanleikakönnun hjá lögreglu hefur komið í ljós að afgreiðslutími þeirra hefur lengst undanfarið vegna álags og fjölgunar slíkra beiðna, sbr. til dæmis bréf umboðsmanns Alþingis 12. nóvember 2025 í máli nr. 431/2025, sem birt er á vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is. Við þær athuganir mínar hefur enn fremur komið í ljós að þær tafir sem orðið hafa á afgreiðslu umsókna og stafa af sömu ástæðu eru almennar en ekki bundnar við einstök mál sérstaklega.
Að þessu gættu, og eftir að hafa kynnt mér kvörtunina, tel ég ekki tilefni til að aðhafast sérstaklega vegna hennar. Í þessu sambandi bendi ég jafnframt á að ég hef þegar tekið tafir við áreiðanleikakannanir hjá lögreglu til athugunar að eigin frumkvæði og óskað upplýsinga frá dómsmálaráðherra af þessu tilefni, sbr. tilkynningu þar um á vefsíðu umboðsmanns 11. mars sl.
Með vísan til framangreinds tel ég ekki tilefni til að taka kvörtunina til nánari athugunar og læt ég því umfjöllun minni um hana lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.