A kvartaði yfir töfum á viðbrögðum dómsmálaráðuneytisins við erindi hennar er varðaði gjafsókn og ósk um viðtal vegna máls hennar.
Umboðsmaður taldi að ekki hefði ekki orðið slíkur dráttur á svörum ráðuneytisins að tilefni væri til að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 8. ágúst sl. sem beinist að dómsmálaráðuneytinu og lýtur að töfum á viðbrögðum ráðuneytisins við erindi þínu dags. 10. apríl sl., sem varðaði gjafsókn, en þar óskaðir þú meðal annars eftir viðtali til þess að fara yfir mál þitt. Í tilefni af kvörtuninni hafði starfsmaður minn samband við þig símleiðis 3. september sl. og óskaði eftir því að afhent yrðu afrit samskipta þinna við ráðuneytið, meðal annars af upprunalega erindi þínu til ráðuneytisins. Umbeðin gögn bárust síðar sama dag. Samkvæmt þeim ítrekaðir þú erindi þitt 3. september sl.
Í tilefni af kvörtun þinni tek ég fram að það er meginregla í stjórnsýslurétti að stjórnvöldum ber almennt að svara erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa. Það hvort um óeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem líta verður meðal annars til efnis viðkomandi erindis og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkurt svigrúm í því efni. Ég hef almennt litið svo á að rétt sé að sá sem ber fram kvörtun til mín vegna þess að dráttur hafi orðið á því að stjórnvald svaraði erindi frá honum leiti fyrsta kastið sjálfur til stjórnvaldsins með ítrekun á erindinu og gefi því þannig færi á að bregðast við áður en leitað er til mín með kvörtun.
Líkt og áður greinir hefur komið fram að þú ítrekaðir erindi þitt til ráðuneytisins 3. september. Með vísan til þess tel ég ekki að viðbrögð við erindinu hafi enn dregist að slíku marki að nægt tilefni sé til að kvörtunin verði tekin til frekari meðferðar að svo stöddu. Ég tek þó fram að þú getur leitað til mín síðar ef erindinu hefur ekki verið svarað og þú telur viðbrögð hafa dregist úr hófi.
Með vísan til þess sem rakið er að framan er athugun minni á kvörtun þinni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.