Kvörtun og afmörkun athugunar
Hinn 24. október 2025 leitaði A til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir ákvörðun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála 21. sama mánaðar um að erindi hans til stofnunarinnar uppfyllti ekki skilyrði laga nr. 88/2021, um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, til þess að vera tekið til meðferðar hjá stofnuninni. Laut erindið að ákvörðun barnaverndarþjónustu X um að hefja ekki könnun barnaverndarmáls í tilefni af tilkynningu A um að sonur hans hefði verið beittur andlegu ofbeldi af hálfu móður sinnar. Var af hálfu barnaverndarþjónustunnar vísað til þess að mál væri á þeim tíma rekið fyrir dómstólum þar sem skorið yrði úr um forsjá barnsins.
Í tilkynningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála til A var vísað til þess að ekki væru fyrir hendi forsendur til þess að meta ákvörðun barnaverndarþjónustunnar um að hefja ekki könnun í kjölfar tilkynningarinnar sem henni hefði borist og að atvik að baki erindi A væru metin sem svo að þau féllu ekki undir eftirlitshlutverk stofnunarinnar. Í kvörtuninni eru gerðar athugasemdir við þá afstöðu og byggt á því að um sé að ræða málefni sem stofnuninni beri að taka til skoðunar á grundvelli eftirlits hennar með starfsemi barnaverndarþjónusta.
Athugun umboðsmanns á kvörtuninni hefur beinst að því hvort meðferð Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á erindi A hafi verið í samræmi við lög.
Málavextir
Samkvæmt gögnum málsins beindi A tilkynningu til barnaverndarþjónustu X 7. október 2025 um ætlað andlegt ofbeldi gegn syni hans af hálfu móður sem fólst í því að hann hefði verið látinn „skrifa bréf til yfirvalda um sín málefni“. Tilkynningin var tekin fyrir á fundi barnaverndarþjónustunnar 13. sama mánaðar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að hefja könnun máls á grundvelli barnaverndarlaga. Var vísað til þess að mál væri á þeim tíma rekið fyrir dómstólum þar sem skorið yrði úr um forsjá barnsins sem ætti lögheimili hjá föður en lyti sameiginlegri forsjá beggja foreldra. Var A tilkynnt um þá niðurstöðu með bréfi 16. sama mánaðar.
Sama dag og A barst ákvörðun barnaverndarþjónustunnar leitaði hann til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála með kvörtun. Í kvörtuninni voru gerðar athugasemdir við þá afstöðu barnaverndarþjónustunnar að hefja ekki könnun máls. Taldi hann það ekki í samræmi við góða stjórnsýslu að neita að kanna tilkynningu um hið ætlaða ofbeldi af þeirri ástæðu að mál væri á þeim tíma rekið fyrir dómstólum um forsjá barnsins.
Með bréfi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála til A 21. október 2025 var honum tilkynnt um að erindi hans uppfyllti ekki skilyrði laga nr. 88/2021, um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Í tilkynningunni var sú ákvörðun rökstudd með eftirfarandi hætti:
GEV hefur tekið ofangreint erindi þitt til skoðunar. Er af hálfu GEV litið til þess að samkvæmt 6. mgr. 21. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 verður ákvörðun um að hefja könnun máls ekki tekin nema rökstuddur grunur sé um að tilefni sé til og telst mál vera barnaverndarmál þegar formleg ákvörðun um könnun hefur verið tekin. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að barnaverndarlögum nr. 80/2002 er nánar skýrt við hvaða sjónarmið styðjast skuli við mat á því hvenær rökstuddur grunur er fyrir hendi. Í skilyrðinu felst að ekki er heimilt að hefja könnun máls nema gild ástæða og tilefni sé til þess. Hafa verður í huga að hvers kyns afskipti eða aðgerðir af hálfu barnaverndarþjónustu geta verið viðkvæm mál fyrir alla hlutaðeigandi. Af því leiðir að grunur verður að vera á rökum reistur um að aðstæður barnsins séu með þeim hætti sem vikið er að í ákvæðinu. Grunur verður að beinast að því að tiltekið barn eða tiltekin börn búi við óviðunandi aðstæður. Erfitt er að skilgreina nánar hvenær grunur telst á rökum reistur og er starfsmönnum barnaverndarþjónustu falið vald til að meta aðstæður að því leyti. Ákvörðun um hvort hefja eigi könnun máls í kjölfar tilkynningar byggir því á faglegu mati starfsmanna barnaverndarþjónustu hverju sinni. Sú ákvörðun er hvorki kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála né annars stjórnvalds, sbr. 4. mgr. 21. gr. barnaverndarlaga. Með vísan til framangreinds telur GEV því ekki vera fyrir hendi forsendur til að meta ákvörðun barnaverndarþjónustunnar um að hefja ekki könnun í kjölfar tilkynningar sem barst í máli sonar þíns.
Með vísan til þess sem að framan er rakið eru atvik að baki erindi þínu metin ekki falla undir eftirlitshlutverk GEV og verður málinu því lokað í málaskrá stofnunarinnar.
Skýringar Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála
Með bréfi umboðsmanns til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála 19. nóvember 2025 var þess óskað að stofnunin afhenti umboðsmanni afrit af gögnum málsins og bárust þau 20. sama mánaðar. Með bréfi umboðsmanns til stofnunarinnar 19. janúar 2026 var þess annars vegar óskað að hún upplýsti hvort það væri afstaða hennar að meðferð barnaverndarþjónustu á tilkynningu, sem beint væri til þjónustunnar á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002, félli alfarið utan eftirlits stofnunarinnar. Væri það afstaða stofnunarinnar var þess óskað að gerð yrði grein fyrir þeim lagasjónarmiðum sem lægju henni til grundvallar. Hins vegar var þess óskað, væri það afstaða stofnunarinnar að meðferð barnaverndarþjónustu á tilkynningu félli undir eftirlit hennar, að veittar yrðu skýringar á því hvort og þá hvernig barnaverndarþjónusta X hefði lagt fullnægjandi mat á tilkynningu A og hvort þau sjónarmið sem þar væru lögð til grundvallar teldust málefnaleg.
Í svarbréfi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála 5. febrúar 2026 kom fram að stofnunin hefði nú breytt verklagi sínu við rannsókn kvartana er lytu að meðferð barnaverndarþjónustu á tilkynningum sem henni bærust á grundvelli barnaverndarlaga. Þegar slík kvörtun bærist og ekki lægju fyrir í málsgögnum fullnægjandi skýringar á niðurstöðu barnaverndarþjónustu um að hefja ekki könnun máls óskaði stofnunin nú eftir nánari skýringum í því skyni að meta sjálfstætt hvort tilefni hefði verið til aðgerða af hálfu barnaverndarþjónustunnar. Að mati stofnunarinnar væri henni bæði rétt og skylt að kanna afstöðu barnaverndarþjónustu, sem tæki faglega ákvörðun um að hefja ekki könnun máls í kjölfar tilkynningar, lægi slík afstaða ekki fyrir í gögnum máls sem til skoðunar væri hjá stofnuninni. Ljóst væri að samkvæmt 4. mgr. 21. gr. barnaverndarlaga væri sú ákvörðun barnaverndarþjónustu ekki kæranleg til æðra stjórnvalds. Það þýddi þó ekki að slík ákvörðun væri undanskilin eftirliti en hlutverk Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála væri einmitt að hafa eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt væri á grundvelli barnaverndarlaga. Stofnunin hefði því heimildir og skyldur til að endurskoða ákvarðanir barnaverndarþjónustu sem ekki væru kæranlegar.
Í bréfi stofnunarinnar var því næst vikið að ákvörðun barnaverndarþjónustu X í tilefni af tilkynningu A. Af hálfu stofnunarinnar var vísað til þess að A hefði verið tilkynnt um móttöku tilkynningarinnar og greint frá ástæðum þess að barnaverndarþjónustan hefði ekki talið tilefni til þess að hefja könnun máls á grundvelli barnaverndarlaga. Sú ástæða væri að mál væri rekið fyrir dómstólum um forsjá sonar hans. Að mati stofnunarinnar væru þær skýringar réttlætanlegar og ástæður fyrir því að hefja ekki könnun máls málefnalegar, en með því að hefja ekki könnun máls hefði barnaverndarþjónustan metið það svo að ekki væri þörf á aðkomu hennar á þeim tímapunkti og enn fremur að ekki lægi fyrir rökstuddur grunur um að tilefni væri til þess að hefja könnun máls, sbr. 6. mgr. 21. gr. barnaverndarlaga.
Í niðurlagi bréfsins kom fram að samkvæmt framangreindu teldi stofnunin fyrirséð að afgreiðsla málsins hjá henni, samkvæmt breyttu verklagi, yrði sú að atvikið sem kvörtunin beindist að fæli augljóslega ekki í sér ámælisverða háttsemi, sbr. 3. mgr. 17. gr. laga nr. 88/2021, um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Var þar tekið fram að með ámælisverðri háttsemi væri almennt átt við hátterni sem bryti gegn málsmeðferðarreglum og/eða lögum á þann hátt að það hefði áhrif á réttindi aðila máls. Þannig fælist í hugtakinu að tilteknu alvarleikastigi væri náð. Þá bæri að árétta að mál gætu verið þannig vaxin að lítils háttar frávik frá lögum og/eða reglum yrðu ekki talin ámælisverð háttsemi.
Athugun umboðsmanns Alþingis
Nánari afmörkun athugunar
Sem fyrr greinir var í tilkynningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála til A 21. október 2025 annars vegar vísað til þess að ekki væru fyrir hendi forsendur til að meta ákvörðun barnaverndarþjónustu X og hins vegar að þau atvik sem byggju að baki erindi hans féllu ekki undir eftirlitshlutverk stofnunarinnar. Af skýringum Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála til umboðsmanns er þó ljóst að það er engu að síður afstaða hennar að meðferð barnaverndarþjónustu á tilkynningum, sem henni berast á grundvelli barnaverndarlaga, falli undir eftirlit stofnunarinnar. Í ljósi þess hefur athugun mín á málinu verið afmörkuð við þá afstöðu hennar að forsendur barnaverndarþjónustunnar hafi talist réttlætanlegar og að meðferð hennar á tilkynningu A hafi augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi. Það athugast þó að ekki verður séð að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hafi upplýst A um þessa afstöðu stofnunarinnar til afgreiðslu málsins samkvæmt breyttu verklagi.
Lagagrundvöllur
1 Barnaverndarlög
Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er markmið laganna að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Leitast skal við að ná markmiðum laganna með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Í 1. mgr. 4. gr. laganna er svo áréttuð sú meginregla barnaréttar að í barnaverndarstarfi skuli beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að barni séu fyrir bestu. Skulu hagsmunir barna ávallt hafðir í fyrirrúmi í starfsemi barnaverndaryfirvalda.
Í 1. mgr. 16. gr. laga nr. 80/2002 er kveðið á um að öllum sé skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisástæður, verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. Um málsmeðferð slíkra tilkynninga er fjallað í 21. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að þegar barnaverndarþjónusta fái tilkynningu eða berist upplýsingar með öðrum hætti um að líkamlegri eða andlegri heilsu barns eða þroska þess geti verið hætta búin vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra, ofbeldis eða vanvirðandi háttsemi af hendi annarra eða eigin hegðunar þess eða að heilsu eða lífi ófædds barns sé stefnt í hættu eins og lýst sé í 16. gr., skuli hún taka afstöðu til þess án tafar, og eigi síðar en innan sjö daga frá því henni barst tilkynning eða upplýsingar, hvort ástæða sé til að hefja könnun á málinu. Þá segir í 2. mgr. sömu greinar að barnaverndarþjónusta geti með sömu skilyrðum hafið könnun máls vegna upplýsinga sem hún hefur fengið með öðrum hætti. Í 6. mgr. er svo tekið fram að ákvörðun um að hefja könnun máls skuli ekki tekin nema rökstuddur grunur sé um að tilefni sé til og að mál teljist barnaverndarmál þegar barnaverndarþjónusta hefur tekið formlega ákvörðun um að hefja könnun.
Í athugasemdum við 21. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 80/2002 segir meðal annars eftirfarandi:
Í skilyrðinu um rökstuddan grun [...] felst að ekki er heimilt að hefja könnun máls nema gild ástæða sé til að ætla að tilefni sé til þess. Hafa verður í huga að hvers konar afskipti eða aðgerðir af hálfu barnaverndarnefndar geta verið viðkvæmt mál fyrir hlutaðeigandi. Af því leiðir að grunur verður að vera á rökum reistur um að aðstæður séu með þeim hætti sem vikið er að í greininni. Grunur verður að beinast að því að tiltekið barn eða tiltekin börn búi við óviðunandi aðstæður. Erfitt er að skilgreina nánar hvenær grunur telst á rökum reistur. Í stuttu máli má segja að í skilyrðinu um rökstuddan grun felist að ekki sé heimilt að hefja rannsóknaraðgerðir nema nokkrar líkur séu á því að tilefni sé til þess. Þetta má ekki túlka of þröngt, sérstaklega í ljósi þess hversu afmarkaðar heimildir barnaverndarnefnd hefur við athugun á máli áður en tekin er ákvörðun um hvort hefja skuli könnun, eins og nánar er gerð grein fyrir hér á eftir. Þá má árétta að barnaverndarnefnd er skylt að láta mál niður falla á síðari stigum um leið og í ljós kemur að ekki er ástæða til frekari afskipta. Verður ekki hjá því komist að fela þeim er starfa að þessum málum að meta það í hverju einstöku tilviki hvort skilyrðinu um rökstuddan grun er fullnægt. Óraunhæft er að ætla að hægt sé að kveða skýrar á um þetta skilyrði í lagatexta.
Það er einnig sérstakt álitamál hversu ríkar heimildir barnaverndarnefnd á að hafa til athugunar eða rannsóknar á máli til að undirbúa formlega ákvörðun sína um það hvort hefja skuli könnun þess eða ekki. Í framkvæmd hefur þetta atriði valdið nokkrum vafa. [...] Í aðalatriðum verður að gera ráð fyrir að heimildum nefndanna til sérstakrar rannsóknar eða athugunar í tilefni af tilkynningum sé þröngur stakkur skorinn. Ákvörðun um að hefja könnun verður fyrst og fremst að taka á grundvelli innihalds tilkynningarinnar. Atriði sem skipta máli í því sambandi er m.a. hversu alvarlegar ávirðingar koma fram í tilkynningu, hversu nákvæm er hún, af hverju tilkynningin stafar, í hvaða aðstöðu er tilkynnandi til að þekkja aðstæður o.s.frv. Þetta leiðir raunar til þess að fara verður gætilega þegar um nafnlausar tilkynningar er að ræða. Þá getur einnig verið að tilkynning sé sett fram af meinbægni í garð þeirra sem hún varðar. Nefndinni er heimilt að ræða frekar við tilkynnanda sjálfan til þess að treysta grundvöll undir ákvörðun sinni. Þá verður að gera ráð fyrir að nefndin geti skoðað eldri tilkynningar og mál sem varða sömu aðila ef því er að skipta. Á hinn bóginn er nefndinni ekki heimilt að afla sérstakra gagna, ræða við aðra en tilkynnanda eða halda uppi fyrirspurnum um barn, fjölskyldu þess eða heimili áður en ákvörðun er tekin um könnun máls [...]. (Alþt. 2001–2002, A-deild, bls. 1831–1832.)
Samkvæmt 7. mgr. 21. gr. laga nr. 80/2002 skulu nánari ákvæði um málsmeðferð vegna tilkynninga, svo sem um skráningu þeirra, eyðublöð o.fl., sett í reglugerð sem ráðherra setur. Á þeim grundvelli hefur ráðherra sett reglugerð nr. 56/2004, um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd. Nánari reglur um ákvörðun um að hefja könnun barnaverndarmáls er að finna í 14. gr. reglugerðarinnar en samkvæmt 3. mgr. hennar er barnaverndarnefnd (nú barnaverndarþjónustu) heimilt, áður en ákvörðun er tekin um hvort ástæða sé til að hefja könnun, að afla nánari upplýsinga frá tilkynnanda og/eða skoða eldri gögn sem hún hefur um barnið og forsjáraðila þess.
2 Lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og málsmeðferð kvörtunarmála
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála starfar samkvæmt samnefndum lögum nr. 88/2021. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna fer stofnunin með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli nánar greindra laga, þar á meðal barnaverndarlaga. Eru verkefni stofnunarinnar meðal annars að hafa áðurnefnt eftirlit með gæðum þjónustu og taka á móti og vinna úr kvörtunum frá notendum þjónustunnar, sbr. c- og d-liði 2. mgr. 3. gr. sömu laga.
Í 17. gr. laga nr. 88/2021 eru nánari ákvæði um kvartanir yfir þjónustu. Samkvæmt 1. mgr. hennar geta notendur þjónustu sem lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála beint kvörtun yfir gæðum þjónustunnar til stofnunarinnar. Þá skal í kvörtun koma fram að hverjum hún beinist og lýsing á atvikum sem eru tilefni kvörtunar. Í 2. mgr. greinarinnar eru síðan sett fram þau skilyrði að kvörtun skuli ekki tekin til meðferðar ef meira en ár er liðið frá atvikunum sem eru tilefni kvörtunar og ef hún varðar ákvörðun sem skjóta megi til æðra stjórnvalds eða sem dómstólum beri að taka afstöðu til. Ef kvörtun berst utan frests samkvæmt 2. mgr. eða beinist að atvikum sem Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála telur augljóst að feli ekki í sér ámælisverða háttsemi lýkur stofnunin meðferð kvörtunarinnar með tilkynningu þar að lútandi til þess sem bar fram kvörtun, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Í 4. mgr. 17. gr. segir svo að ef 3. mgr. eigi ekki við skuli stofnunin afla upplýsinga um atvik, auk annarra nauðsynlegra gagna og skýringa, frá þeim sem kvörtun beinist að. Þegar könnun máls er lokið skuli niðurstaða Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um kvörtun tilkynnt þeim sem beindi kvörtuninni til stofnunarinnar. Í niðurstöðunni skuli fjallað um hvort atvikin sem kvörtun lúti að feli í sér ámælisverða háttsemi af hálfu einhvers sem lúti eftirliti stofnunarinnar.
Í athugasemdum við 17. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 88/2021 segir að í 3. mgr. hennar sé fjallað um viðbrögð við kvörtunum sem ekki gefi tilefni til umfangsmikillar málsmeðferðar. Hvað snertir 4. mgr. greinarinnar er þar tekið fram að mikilvægt sé að árétta að ef meðferð kvörtunarmáls leiði líkur að því að þjónusta sem kvörtun lýtur að sé ekki í samræmi við ákvæði laga, reglugerða, reglna og samninga og/eða skilyrði rekstrarleyfis geti verið tilefni fyrir stofnunina að hefja frumkvæðiseftirlit gagnvart viðkomandi aðila sem geti þá lokið með skýrslu og eftir atvikum meira íþyngjandi úrræðum (þskj. 442 á 151. löggjafarþingi 2020–2021, bls. 25).
Samkvæmt framangreindu hefur Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála meðal annars verið falið það verkefni að taka á móti kvörtunum og fjalla um hvort þau atvik sem þær lúti að feli í sér ámælisverða háttsemi. Verður ekki annað séð en að í lögunum sé gengið út frá því að sú niðurstaða feli í sér álit stofnunarinnar en ekki bindandi ákvörðun um rétt eða skyldu manna, það er svokallaða stjórnvaldsákvörðun. Það hefur meðal annars þá þýðingu að um málsmeðferð slíkra kvartana fer ekki eftir stjórnsýslulögum nr. 37/1993, enda er gildissvið laganna að meginstefnu bundið við mál sem lokið hefur eða til greina kemur að ljúka með stjórnvaldsákvörðun, sbr. 2. mgr. 1. gr. þeirra. Ég nefni einnig í þessu sambandi að í athugasemdum við 21. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 88/2021, þar sem fjallað er um kæruheimild laganna vegna stjórnvaldsákvarðana Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, er áréttað að ekki sé litið svo á að niðurstöður stofnunarinnar vegna kvörtunarmála feli í sér ákvarðanir sem falli undir gildissvið stjórnsýslulaga þar sem slíkar niðurstöður eigi eingöngu að fela í sér afstöðu eða álit stofnunarinnar á tilteknum atvikum en ekki ákvörðun sem bindi enda á tiltekið mál sem beinist út á við gagnvart borgurunum (þskj. 442 á 151. löggjafarþingi 2020–2021, bls. 27).
Þótt stjórnsýslulögin gildi ekki um málsmeðferð kvörtunarmála hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála ber að hafa í huga að mörg ákvæði laganna, þar á meðal rannsóknarregla 10. gr. þeirra, eru byggð á óskráðum meginreglum sem hafa víðtækara gildissvið. Þar sem gildissviði stjórnsýslulaga sleppir ber stjórnvöldum því engu að síður að gæta að óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttar eftir því sem við á.
Það leiðir af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar að stjórnvöldum ber að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Er mál talið nægjanlega upplýst þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Af rannsóknarreglunni leiðir að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála ber að leggja fullnægjandi grundvöll að niðurstöðu sinni um það hvort þau atvik sem kvörtun beinist að hafi falið í sér ámælisverða háttsemi. Telji stofnunin sig ekki hafa nægar upplýsingar undir höndum að þessu leyti kann henni því að vera rétt að afla nánari upplýsinga frá þeim sem leggur fram kvörtun eða eftir atvikum þeim sem kvörtunin beinist að.
Var lagt fullnægjandi mat á tilkynninguna?
Í 21. gr. barnaverndarlaga eru sett fram þrjú meginskilyrði sem barnaverndaryfirvöldum ber að líta til við mat á því hvort ástæða sé til þess að hefja könnun á máli. Í fyrsta lagi þarf tilkynning eða þær upplýsingar sem barnaverndaryfirvöld hafa undir höndum að bera það með sér að líkamlegri eða andlegri heilsu barns eða þroska þess geti verið hætta búin. Í öðru lagi að þær aðstæður séu tilkomnar vegna nánar greindra ástæðna, til að mynda framferðis foreldra. Í þriðja lagi skal ákvörðun um að hefja könnun ekki tekin nema rökstuddur grunur sé um að tilefni sé til þess.
Með 21. gr. barnaverndarlaga hefur löggjafinn falið barnaverndaryfirvöldum að leggja mat á það hvort tilkynning eða upplýsingar sem þeim berast með öðrum hætti um aðstæður barns gefi tilefni til þess að hefja könnun barnaverndarmáls. Við þá ákvörðunartöku verður að játa barnaverndaryfirvöldum nokkurt svigrúm til mats, og þá jafnframt með tilliti til þeirra takmörkuðu möguleika sem barnaverndarlög og reglugerð nr. 56/2004 gera ráð fyrir að þau hafi til athugunar eða rannsóknar á máli áður en ákvörðun er tekin um hvort hefja skuli könnun þess.
Eins og lögskýringargögn bera með sér geta afskipti og aðgerðir af hálfu barnaverndaryfirvalda verið viðkvæmt mál fyrir þá sem eiga í hlut og falið í sér íþyngjandi íhlutun í fjölskyldulíf þeirra. Við mat barnaverndaryfirvalda geta því vegist á annars vegar hagsmunir foreldra af því að sæta ekki rannsóknaraðgerðum barnaverndaryfirvalda og hins vegar hagsmunir barna af því að búa ekki við óviðunandi aðstæður. Við mat á þessum hagsmunum ber barnaverndaryfirvöldum til viðbótar þeim skilyrðum sem fram koma í 21. gr. barnaverndarlaga og sjónarmiðum um meðalhóf að hafa í huga þá meginreglu að hagsmunir barns skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi og að í barnaverndarstarfi skuli beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að séu því fyrir bestu. Er það og markmið könnunar máls að afla nauðsynlegra upplýsinga um aðstæður barns og meta þörf fyrir úrræði samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga, allt í samræmi við hagsmuni og þarfir barnsins, sbr. 1. mgr. 22. gr. laganna. Ákvarðanir barnaverndaryfirvalda verða jafnframt að fullnægja þeim kröfum sem leiða af almennum reglum stjórnsýsluréttarins, svo sem réttmætisreglunni, en í samræmi við hana verður ákvörðun um hvort hefja eigi könnun barnaverndarmáls að byggjast á málefnalegum sjónarmiðum.
Sem fyrr segir beindi A tilkynningu til barnaverndarþjónustu X um ætlað andlegt ofbeldi gagnvart syni hans. Í samræmi við 21. gr. barnaverndarlaga hlaut athugun barnaverndarþjónustunnar fyrst og fremst að taka mið af efni tilkynningarinnar og þá einkum hversu alvarlegar þær ávirðingar voru sem þar komu fram. Við mat á því hvort þá hafi verið til staðar rökstuddur grunur um að tilefni væri til þess að hefja könnun máls kann jafnframt að hafa þýðingu frá hverjum tilkynningin stafaði og eftir atvikum samhengi hennar við eldri tilkynningar og mál sem vörðuðu sömu aðila, hafi þeim verið til að dreifa. Það féll síðan í hlut barnaverndarþjónustunnar, á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga, að meta hvort skilyrðinu um rökstuddan grun væri fullnægt, eins og fram kemur í áðurröktum lögskýringargögnum.
Bókun barnaverndarþjónustunnar á fundi hennar 13. október 2025, þar sem tilkynning A var til meðferðar, ber það ekki með sér að hún hafi verið metin með framangreindum hætti, heldur er þar einungis vísað til þess að ekki væri talin ástæða til að hefja könnun máls þar sem mál væri á þeim tíma rekið fyrir dómstólum þar sem skorið yrði úr um forsjá barnsins. Ég get ekki fallist á að það sjónarmið, eitt og sér og án frekara samhengis, geti talist málefnalegt við slíkt mat. Verður því ekki séð að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hafi, án frekari upplýsinga frá barnaverndarþjónustu X, nægar forsendur til að slá því föstu að meðferð barnaverndarþjónustunnar á tilkynningunni hafi augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi, líkt og byggt er á í skýringum stofnunarinnar til umboðsmanns. Þar sem það var engu að síður gert er það niður staða mín að ákvörðun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála hafi ekki verið reist á fullnægjandi grundvelli, með tilliti til rannsóknar málsins.
Að lokum tek ég fram að það vakti athygli mína að tilkynning A til barnaverndarþjónustu X var ekki á meðal þeirra gagna sem Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála afhenti umboðsmanni. Í samskiptum umboðsmanns við stofnunina af því tilefni kom fram að hún hefði ekki legið fyrir hjá stofnuninni við meðferð málsins. Var bent á að í bókun barnaverndarþjónustunnar væri vísað til tilkynningarinnar, en þar kæmi fram hvert innihald hennar hefði verið. Að mínu mati er það ekki í samræmi við óskráða rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar að tilkynning sem er til umfjöllunar hjá stjórnvaldi liggi ekki fyrir þegar leyst er úr máli hjá eftirlitsaðila. Er hér einnig litið til þess sem áður hefur verið rakið um þá lykilþýðingu sem efni tilkynningar er ætlað að hafa við mat barnaverndarþjónustu á því hvort hefja eigi könnun máls. Var því ekki nægjanlegt að vísað hefði verið til tilkynningarinnar í bókun barnaverndarþjónustunnar þar sem efni hennar var dregið saman með almennum hætti. Í ljósi niðurstöðu minnar í málinu tel ég þó ekki tilefni til að fjalla nánar um þetta atriði.
Hugtakið ámælisverð háttsemi
Óháð niðurstöðu minni í málinu og atvikum þess tel ég tilefni til að víkja stuttlega að eftirlitshlutverki Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála við meðferð kvörtunarmála og þá með tilliti til ummæla í svarbréfi stofnunarinnar til umboðsmanns. Nánar tiltekið þá afstöðu hennar að í hugtakinu „ámælisverð háttsemi“ í skilningi laga nr. 88/2021 felist að tilteknu alvarleikastigi sé náð og að mál geti verið þannig vaxin að lítils háttar frávik frá lögum eða reglum yrðu af þeim sökum ekki talin ámælisverð háttsemi.
Með lögum nr. 88/2021 hefur notendum þjónustu sem lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála verið veitt það úrræði að leita til stofnunarinnar með kvörtun yfir gæðum þjónustunnar. Fullnægi kvörtun skilyrðum til þess að vera tekin til meðferðar og telji stofnunin ekki augljóst að atvik sem kvörtunin lúti að feli ekki í sér ámælisverða háttsemi leiðir af 4. mgr. 17. gr. laganna að henni er skylt að taka kvörtunina til frekari meðferðar og láta þeim sem hefur lagt fram kvörtun í té niðurstöðu þar sem fjallað er um hvort atvikin hafi falið í sér ámælisverða háttsemi af hálfu einhvers sem lýtur eftirliti stofnunarinnar.
Hugtakið „ámælisverð háttsemi“ er hvorki skilgreint nánar í lögum nr. 88/2021 né lögskýringargögnum. Þar koma heldur ekki fram kröfur á þá leið að tilteknu alvarleikastigi sé náð eins og Gæða- og eftirlitsstofnun hefur vísað til í skýringum sínum til mín. Samkvæmt almennri málvenju verður þó að leggja til grundvallar að þar sé átt við háttsemi sem ekki sé í samræmi við þær háttsemisreglur og viðmið sem eftirlitsskyldum aðila ber að starfa eftir. Við nánara mat á merkingu hugtaksins ber jafnframt að hafa í huga að samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga nr. 88/2021 er markmið með starfsemi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála að sú þjónusta sem lýtur eftirliti stofnunarinnar sé traust, örugg og í samræmi við ákvæði laga, reglugerða, samninga og leiðbeininga. Líkt og fram kemur í athugasemdum með þessu ákvæði í frumvarpi því sem varð að framangreindum lögum er með því stuðlað að auknum gæðum og frekari réttarvernd fólks á sviði velferðarmála. Er þar einnig áréttað að rétt hafi þótt að kveða sérstaklega á um þetta markmið í lögum sem hafa skuli til hliðsjónar við túlkun á ákvæðum laganna og sérlaga um verkefni stofnunarinnar (þskj. 442 á 151. löggjafarþingi 2020–2021, bls. 17).
Það er grundvallarregla íslensks réttar að stjórnsýslan er lögbundin. Er stjórnvöldum því almennt skylt að reisa ákvarðanir sínar og athafnir á lögum og er þeim óheimilt að aðhafast nokkuð sem er í andstöðu við lög. Með setningu laga hefur löggjafinn því tekið afstöðu til þeirra háttsemisreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja og kveðið á um þau réttindi og þá réttarvernd sem borgurunum er ætlað að njóta. Ganga verður út frá því að hafi eftirlitsskyldur aðili í starfsemi sinni ekki farið að lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum, jafnvel þótt um lítilsháttar frávik sé að ræða, yrði það talið ámælisvert. Því skal þó haldið til haga að sjónarmið um lítils háttar frávik kunna að hafa þýðingu við mat á því hversu umfangsmikla umfjöllun hver kvörtun kallar á, sbr. til hliðsjónar álit umboðsmanns Alþingis 7. júní 2024 í máli nr. 12179/2023.
Niðurstaða
Það er niðurstaða mín að ákvörðun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála hafi ekki verið reist á fullnægjandi grundvelli. Byggist sú niðurstaða á því að stofnunin hafi ekki, án frekari upplýsinga frá barnaverndarþjónustu X, haft nægar forsendur til að slá því föstu að meðferð barnaverndarþjónustunnar á tilkynningu A hafi augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi.
Ég beini því til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála að taka erindi A til nýrrar meðferðar, komi fram ósk um það frá honum, og leysi þá úr málinu í samræmi við þau sjónarmið sem rakin eru í álitinu. Þá er því jafnframt beint til stofnunarinnar að taka framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem þar eru rakin við úrlausn sambærilegra mála.