A kvartaði yfir töfum á meðferð Útlendingastofnunar á beiðni um endurupptöku máls.
Umboðsmaður taldi, með vísan til þess að beiðnin hafði verið til meðferðar í rúma þrjá mánuði, ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á kvörtuninni.
Umboðsmaður upplýsti A um að málshraði við meðferð mála hjá Útlendingastofnun hefði verið tekinn til almennrar athugunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. október 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 28. ágúst sl. en hún beinist að Útlendingastofnun og lýtur einkum að því að meðferð endurupptökubeðni þinnar í kjölfar þess að umsókn þinni um dvalarleyfi var synjað hafi dregist úr hófi. Samkvæmt kvörtun þinni óskaðir þú eftir endurupptöku málsins 26. júní sl. en kvörtun þinni fylgdu jafnframt tölvupóstsamskipti þín við Útlendingastofnun í júlí- og ágústmánuði sl. en af þeim verður ráðið að þú hafir átt í samskiptum við stofnunina um umrædda endurupptökubeiðni.
Með vísan til efnis kvörtunar þinnar tek ég fram að almennt er ekki gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald eftir atvikum, hafa lokið umfjöllun sinni um það, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Þrátt fyrir framangreint hefur umboðsmaður talið að unnt sé að kvarta í tilefni tafa við málsmeðferð enda þótt mál sé eðli málsins samkvæmt enn til meðferðar við slíkar aðstæður. Slíkar kvartanir eru þó aðeins teknar til frekari athugunar ef fyrir liggur að mál hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma og sá sem í hlut á hefur sjálfur spurst fyrir um hvað líði meðferð og afgreiðslu máls síns.
Fyrir liggur að beiðni þín um endurupptöku máls, sem lauk með synjum umsóknar þinnar, hefur verið til meðferðar hjá Útlendingastofnun í nokkra mánuði og samskipti hafa átt sér stað milli þín og stofnunarinnar í tengslum við þá málsmeðferð. Tel ég ekki að slíkur dráttur hafi orðið á meðferð beiðni þinnar þannig að nægilegt tilefni sé til að spurst verði fyrir af minni hálfu um hvað líði meðferð og afgreiðslu málsins eða að það verði tekið til frekari athugunar að öðru leyti. Í því samhengi hef ég meðal annars í huga að mér hafa undanfarin misseri borist allmargar kvartanir í tilefni tafa við meðferð mála hjá Útlendingastofnun. Hef ég í sumum tilfellum talið rétt að spyrjast fyrir hjá stofnuninni um hvað líði meðferð og afgreiðslu umræddra mála. Hefur stofnunin veitt mér þær skýringar að mikið álag sé í starfsemi hennar sökum mikils málafjölda og hafa tafir því verið almennar í langflestum tilfellum. Aðrar athugasemdir í kvörtuninni tel ég ekki heldur gefa nægilegt tilefni til frekari athugunar.
Að þessu sögðu er þó rétt að vekja athygli þína á því að ég hef ákveðið að taka málshraða við málsmeðferð Útlendingastofnunar til athugunar að eigin frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997, og til upplýsingar fylgir hjálagt bréf, sem sent hefur verið Útlendingastofnun. Er þar óskað tilgreindra skýringa og upplýsinga. Ég tek þó fram að þessi ákvörðun mín hefur ekki áhrif á þá niðurstöðu að láta meðferð kvörtunar þinnar lokið.
Að síðustu er rétt að taka fram að ef þú telur síðar að óhæfilegur dráttur hafi orðið á meðferð beiðni þinnar um endurupptöku, getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun af slíku tilefni.
Með vísan til þess, sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun þinni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.