Hæfi.

(Mál nr. 12405/2023)

Kvartað var yfir því að forsætisráðherra hefði verið útnefndur sendiherra velsældarverkefnis Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.  

Þar sem kvörtunin laut ekki að tiltekinni athöfn, athafnaleysi eða ákvörðun stjórnvalds sem snerti hagsmuni viðkomandi eða réttindi með beinum hætti umfram aðra voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallað um hana.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. október 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 10. október sl. yfir því að forsætisráðherra hafi verið útnefndur sendiherra velsældarverkefnis Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit hans kvartað af því tilefni til umboðsmanns. Í þessu ákvæði felst að til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann Alþingis þarf að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða snertir beinlínis hagsmuni hans umfram aðra.

Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að hún lúti að tiltekinni athöfn, athafnaleysi eða ákvörðun stjórnvalds í framangreindum skilningi, þ.e. þau atriði sem þér tilgreinið í kvörtun yðar snerta ekki hagsmuni yðar eða réttindi með beinum hætti umfram aðra. Brestur því lagaskilyrði til þess að kvörtun yðar verði tekin til frekari athugunar.

Með vísan til framangreinds er umfjöllun minni um kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.