Opinberir starfsmenn.

(Mál nr. 12462/2023 & 12466/2023)

Kvartað var yfir því að ekki sé fjallað í lögum um hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að hljóta skipun í embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra. Jafnframt voru gerðar athugasemdir við efni laga um útlendinga sem og reglugerðarheimildir ráðherra.  

Þar sem kvartanirnar lutu með almennum hætti að efni löggjafar Alþingis voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um þær.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. nóvember 2023.

   

   

Vísað er til erinda yðar 14. og 17. nóvember sl. þar sem þér kvartið yfir því að ekki sé fjallað um það í lögum hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að hljóta skipun í embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra. Þá gerið þér jafnframt athugasemdir við efni laga nr. 80/2016, um útlendinga, sem og reglugerðarheimildir ráðherra.

Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af hálfu aðila sem heyrir undir eftirlit umboðsmanns kvartað af því tilefni til embættisins. Í þessu ákvæði felst að til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann Alþingis þarf að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Í 3. gr. laganna er síðan kveðið á um starfssvið umboðsmanns. Þar segir í a-lið 4. mgr. að starfssvið umboðsmanns taki ekki til starfa Alþingis og stofnana þess. Það er því almennt ekki á verksviði umboðsmanns að taka afstöðu til þess hvernig til hefur tekist með löggjöf sem Alþingi hefur sett.

Af kvörtunum yðar verður ekki ráðið að þær lúti að tilteknum athöfnum, athafnaleysi eða ákvörðunum stjórnvalda í framangreindum skilningi heldur lúta þær með almennum hætti að efni löggjafar sem Alþingi hefur sett. Brestur því lagaskilyrði til þess að kvartanir yðar verði teknar til frekari athugunar.

Með vísan til framangreinds lýk ég umfjöllun minni um kvartanir yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.