Almannatryggingar. Sjúkratryggingar.

(Mál nr. 12471/2023)

Kvartað var yfir því að vera ekki sjúkratryggður hér á landi eftir dvöl erlendis.  

Þar sem hvorki varð ráðið að formleg ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands lægi fyrir vegna þessa né hefði málið verið lagt fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála að fenginni niðurstöðu SÍ voru ekki skilyrði til að umboðsmaður tæki kvörtunina til frekari meðferðar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. nóvember 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 20. nóvember sl. sem þér beinið að Sjúkratryggingum Íslands og lýtur að því að þér séuð ekki sjúkratryggður hér á landi í kjölfar dvalar yðar erlendis.

Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Ákvæði þetta er byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum sem ekki er í samræmi við lög áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 4. mgr. 10. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, ákvarðar sjúkratryggingastofnunin hvort einstaklingur teljist sjúkratryggður hér á landi samkvæmt lögunum. Þá segir í 1. og 2. mgr. 36. gr. sömu laga að rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta samkvæmt III. kafla laganna sé heimilt að kæra ákvörðun sjúkratryggingastofnunarinnar til úrskurðarnefndar velferðarmála og skal kæra til úrskurðarnefndarinnar vera skrifleg og borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Á skrifstofum sjúkratryggingastofnunarinnar skulu liggja frammi eyðublöð í þessu skyni og veita starfsmenn stofnunarinnar nauðsynlega aðstoð við útfyllingu þeirra.

Af kvörtun yðar verður ekki ráðið hvort fyrir liggi formleg ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um hvort þér teljist sjúkratryggður hér á landi og þá hvort stofnuninni sé heimilt að taka þátt í kostnaði yðar. Ég vek því athygli yðar á því að yður kann að vera fært að leita eftir slíkri ákvörðun sem síðan er kæranleg til úrskurðarnefndar velferðarmála. Teljið þér yður enn beittan rangsleitni, að fenginni úrlausn framangreindra stjórnvalda, er yður fært að leita til umboðsmanns á nýjan leik í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997. Þar til afstaða þeirra liggur fyrir brestur hins vegar lagaskilyrði til þess að taka kvörtun yðar til frekari meðferðar.

Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.