Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Opinberir starfsmenn. Rökstuðningur.

(Mál nr. 12452/2023)

Kvartað var yfir því að beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun um ráðningu í starf hjá Landspítalanum hefði ekki verið svarað.  

Í svari spítalans til umboðsmanns kom fram að farist hefði fyrir að senda rökstuðninginn en úr því hefði verið bætt. Ekki var því tilefni til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. desember 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 9. nóvember sl. yfir því að beiðni yðar 25. október sl. um rökstuðning fyrir ákvörðun um ráðningu í starf [...] hjá Landspítalanum, þar sem þér voruð meðal umsækjenda, hafi ekki verið svarað.

Í tilefni af kvörtun yðar var þess óskað að forstjóri spítalans upplýsti hvort erindi yðar hefði borist og þá hvað liði meðferð og afgreiðslu þess. Svör 23. nóvember sl. þar sem fram kom að það hafði misfarist að senda yður téðan rökstuðning en að rökstuðningur hafði nú verið sendur. Umboðsmanni hefur jafnframt borist afrit hans. Í ljósi þess að erindi yðar hefur nú verið svarað tel ég ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna málsins og læt athugun minni lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.