Atvinnuleysistryggingar.

(Mál nr. 12497/2023)

Kvartað var yfir ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á þeim grundvelli að viðkomandi hefði ekki mætt í atvinnuviðtal sem bauðst. 

Þar er erindið hafði ekki verið lagt fyrir úrskurðarnefnd velferðarmála voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um það að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. desember 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 8. desember sl. sem þér beinið að Vinnumálastofnun. Af kvörtuninni verður ráðið að hún lúti að ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður greiðslu atvinnuleysisbóta til yðar í tvo mánuði á grundvelli þess að þér hafið ekki mætt í atvinnuviðtal sem yður bauðst.

Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Þetta ákvæði er einkum byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 2. mgr. 11. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, skal úrskurðarnefnd velferðarmála kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Stjórnsýslukæra skal berast nefndinni skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015, um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Af kvörtun yðar, en henni fylgdu engin gögn, verður ekki ráðið að þér hafið kært ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þar til niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir brestur því lagaskilyrði til þess að kvörtun yðar verði tekin til frekari athugunar. Teljið þér yður enn rangsleitni beittan, að fenginni úrlausn nefndarinnar, er yður fært að leita til umboðsmanns á nýjan leik í samræmi við 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997.

Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.