Skattar og gjöld. Samgöngumál. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 12519/2023)

Kvartað var yfir fyrirhugaðri notkun akstursmæla í bifreiðum við ákvörðun kílómetragjalds vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbíla sem Alþingi samþykkti í desember 2023.  

Þar sem starfssvið umboðsmanns tekur ekki til lagasetningar Alþingis voru ekki skilyrði til að hann fjallaði um kvörtunina.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. desember 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 19. desember sl. sem þér beinið að Alþingi og lýtur að fyrirhugaðri notkun akstursmæla í bifreiðum við ákvörðun kílómetragjalds samkvæmt lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, sem samþykkt voru á Alþingi 16. desember sl.

Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt a-lið 4. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns ekki til starfa Alþingis og stofnana þess. Það er því almennt ekki á verksviði umboðsmanns Alþingis að taka afstöðu til þess hvernig til hefur tekist með löggjöf sem Alþingi hefur sett. Með 11. gr. laga nr. 85/1997 er umboðsmanni þó veitt heimild til að tilkynna Alþingi, hlutaðeigandi ráðherra eða sveitarstjórn ef hann verður var við meinbugi á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum í störfum sínum. Í lögum er hins vegar ekki gert ráð fyrir því að kvörtun verði borin fram við umboðsmann á þessum grundvelli, þótt vitanlega sé öllum frjálst að koma á framfæri við umboðsmann ábendingum um slík atriði.

Af kvörtun yðar, sem beint er að Alþingi, verður ekki annað ráðið en að hún beinist með almennum hætti að fyrirkomulagi sem löggjafinn hefur tekið afstöðu til með lögum. Brestur því lagaskilyrði til að kvörtun yðar verði tekin til frekari meðferðar og læt ég því máli yðar lokið af minni hálfu, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.