Almannavarnir. Ferðafrelsi. Almannaréttur.

(Mál nr. 12527/2023)

Kvartað var yfir takmörkunum lögreglustjórans á Suðurnesjum á aðgengi í nágrenni gosstöðva við Sundhnúka á Reykjanesskaga.  

Þar sem athugasemdirnar höfðu ekki verið bornar undir lögreglustjórann og dómsmálaráðherra voru ekki skilyrði að svo stöddu til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. janúar 2024.

  

Vísað er til kvörtunar yðar 22. desember sl. sem þér beinið að lögreglustjóranum á Suðurnesjum og lýtur að takmörkunum á aðgengi í nágrenni gosstöðva við Sundhnúka á Reykjanesskaga. Samkvæmt kvörtuninni mun björgunarsveitarmaður hafa vísað yður frá svæði í nágrenni við gosstöðvarnar 19. sama mánaðar á grundvelli fyrirmæla lögreglu. Teljið þér að í því hafi falist brot á almannarétti.

Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Að baki þessu ákvæði býr það sjónarmið að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta og bæta úr ágöllum sem verið hafa á fyrri afskiptum og ákvörðunum þeirra af viðkomandi máli sem ekki eru í samræmi við lög áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 82/2008, um almannavarnir, er dómsmálaráðherra æðsti yfirmaður almannavarna á landinu. Þá verður ekki ráðið af kvörtun yðar að þér hafið borið athugasemdir yðar undir lögreglustjórann á Suðurnesjum. Í ljósi þeirra sjónarmiða sem búa að baki 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 tel ég því rétt að þér leitið fyrsta kastið til lögreglustjórans á Suðurnesjum með athugasemdir yðar og eftir atvikum dómsmálaráðherra, að fenginni afstöðu hans. Þar til afstaða þeirra liggur fyrir brestur hins vegar lagaskilyrði til þess að taka kvörtun yðar til frekari meðferðar. Kjósið þér að leita með erindi til stjórnvalda í samræmi við framangreint er yður frjálst að leita til umboðsmanns á ný með kvörtun þar að lútandi og verður þá tekin afstaða til þess hvort og þá að hvaða marki málið getur komið til athugunar af hálfu umboðsmanns. Þá vek ég athygli yðar á því að umboðsmaður hefur, í áliti 23. maí 2023 í máli nr. F117/2022, fjallað með almennum hætti um heimildir laga nr. 82/2008 til takmörkunar á ferðafrelsi manna. Álitið er birt á heimasíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is.

Með vísan til framangreinds er umfjöllun minni um kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.