Skattar og gjöld.

(Mál nr. 12560/2023)

Kvartað var yfir gjaldtöku Isavia fyrir afnot af bílastæði við Egilsstaðaflugvöll.  

Isavia er opinbert hlutafélag og starfar að jafnaði á grundvelli einkaréttar þótt það sé í eigu ríkisins. Ákvörðun þess um gjaldtökuna er því einkaréttarlegs eðlis og fellur sem slík utan starfssviðs umboðsmanns.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2024.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 17. janúar sl. yfir gjaldtöku Isavia fyrir afnot af bílastæði við Egilsstaðaflugvöll.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk hans að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögunum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Í 1. mgr. 3. gr. laganna er kveðið á um að starfssvið hans taki til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Þá segir í 2. mgr. sömu greinar að starfssvið umboðsmanns taki einnig til starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga.

Isavia er opinbert hlutafélag. Það starfar því að jafnaði á grundvelli einkaréttar þótt það sé í eigu ríkisins. Þá er ákvörðun félagsins um gjaldtöku fyrir afnot bílastæða í umsjón þess einkaréttarlegs eðlis en ekki ákvörðun um rétt eða skyldu manna í skilningi stjórnsýslulaga. Af framangreindum sökum brestur lagaskilyrði til að kvörtun yðar verði tekin til frekari meðferðar.

Með vísan til þess sem rakið er að framan er athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.