Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Menntamál.

(Mál nr. 12555/2024)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu stjórnsýslukæru hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu.  

Í kjölfar eftirgrennslanar umboðsmanns kvað ráðuneytið upp úrskurð og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. febrúar 2024.

  

   

Vísað er til kvörtunar 15. janúar sl. sem þér komuð á framfæri f.h. A og B og laut að töfum á afgreiðslu á stjórnsýslukæru þeirra til mennta- og barnamálaráðuneytisins 4. janúar 2022 vegna synjunar Reykjavíkurborgar á umsókn um skólavist í sérhæfðri sérdeild fyrir son þeirra 13. júní þess árs.

Í tilefni af kvörtuninni var ráðuneytinu ritað bréf 22. janúar sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Í svari ráðuneytisins 5. febrúar sl. kemur fram að hinn sama dag hafi úrskurður í málinu verið kveðinn upp. Svarinu fylgdi afrit af úrskurði ráðuneytisins.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu málsins og nú liggur fyrir að ráðuneytið hefur lokið því tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Lýk ég því meðferð minni á henni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.