Skattar og gjöld. Póst- og fjarskiptamál. Póstþjónusta. Tollmiðlun.

(Mál nr. 12610/2024)

Kvartað var yfir gjaldtöku Íslandspósts.  

Ekki hafði verið leitað til Byggðastofnunar sem hefur eftirlit með starfsemi póstrekenda. Ákvarðanir hennar mæti svo kæra til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Þá var bent á að athugasemdum, sem lytu að skyldum Íslandspósts sem tollmiðlara í tengslum við tollmeðferð vöru, kynni að vera fært að beina til tollyfirvalda og eftir atvikum til fjámála- og efnahagsráðherra. Þar sem ekki hafði verið leitað til þessara stjórnvalda voru ekki skilyrði að svo stöddu til að umboðsmaður fjallaði um málið.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 14. febrúar 2024.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis 9. febrúar sl. sem beinist að Íslandspósti ohf. og lýtur að gjaldtöku fyrirtækisins.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er það hlutverk umboðsmanns að hafa í umboði Alþingis eftir­­lit með stjórn­sýslu ríkis og sveitar­félaga og tryggja rétt borgaranna gagn­vart stjórnvöldum landsins. Samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. laganna tekur starfssvið umboðsmanns til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga auk starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ástæða þess að ég bendi yður á þetta er sú að Íslandspóstur ohf. er opin­bert hluta­félag sem starfar m.a. á grundvelli laga nr. 2/1995, um hluta­félög, og telst því einkaréttarlegur aðili.

Í ljósi þess að kvörtun yðar beinist að gjaldtöku vil ég taka fram að samkvæmt 4. gr. a í lögum nr. 98/2019, um póstþjónustu, hefur Byggðastofnun eftirlit með starfsemi póstrekenda og því að starfsemi þeirra sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur, skilyrði eða ákvarðanir sem um starfsemina gilda. Í 16. og 17. gr. laganna er fjallað um viðskiptaskilmála og gjaldskrár. Í 1. mgr. 16. gr. laganna segir að alþjónustuveitendur líkt og Íslandspóstur skuli birta opinberlega almenna viðskiptaskilmála og gjaldskrá sem um þjónustu þeirra gilda. Í 3. mgr. 17. gr. laganna segir að gjaldskrár fyrir alþjónustu, þar á meðal vegna erlendra póstsendinga, skuli taka mið af raunkostnaði við að veita þjónustuna að viðbættum hæfilegum hagnaði.

Í 3. mgr. 32. gr. laga nr. 98/2019 er kveðið á um að telji neytendur póstþjónustu, eða aðrir sem hagsmuna hafa að gæta, að póstrekandi brjóti gegn skyldum sínum samkvæmt lögunum, eða gegn skilyrðum sem mælt er fyrir um í almennum heimildum, réttindum eða í rekstrarleyfi eða skilgreindum alþjónustukvöðum, geti hlutaðeigandi beint kvörtun til Byggðastofnunar um að hún láti málið til sín taka. Ákvarðanir stofnunarinnar eru svo kæranlegar til úrskurðar­nefndar fjarskipta- og póstmála, sbr. 42. gr. sömu laga. Í því sambandi athugast þó að athugasemdir sem lúta að skyldum Íslandspósts ohf. sem tollmiðlara í tengslum við tollmeðferð vöru, s.s. tollskýrslugerð og tengda gjaldtöku, verða ekki bornar undir Byggðastofnun heldur kann að vera fært að beina þeim til tollyfirvalda á grundvelli 50. gr. tollalaga nr. 88/2005 og eftir atvikum til fjármála- og efnahagsráðherra sem fer með mál er varða tolla.

Ástæða þess að ég rek framangreint er sú að í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, segir að ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds sé ekki unnt að kvarta til um­boðs­manns fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Ákvæðið byggist á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til þess að leiðrétta ákvarðanir sem hugsanlega eru rangar áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvartanir. Með vísan til þess sem að framan er rakið og þeirra sjónarmiða sem búa að baki 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 tel ég rétt að benda yður á þá leið að bera upp erindi yðar framangreind stjórnvöld. Ég tek þó fram að með þeirri ábendingu minni hef ég enga efnislega afstöðu tekið til kvörtunar yðar að öðru leyti.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Teljið þér yður enn beittan rangsleitni að fenginni endanlegri niðurstöðu framangreindra stjórnvalda, getið þér leitað til umboðsmanns á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.