Gjafsókn.

(Mál nr. 12454/2023)

Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um gjafsókn.  

Í kjölfar eftirgrennslanar umboðsmanns ákvað ráðuneytið að endurupptaka málið og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. febrúar 2024.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 13. nóvember 2023, fyrir hönd A, og lýtur að ákvörðun dómsmálaráðuneytisins 25. október þess árs um að synja beiðni hennar um gjafsókn.

Í tilefni af kvörtuninni var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 5. febrúar sl. þar sem þess var óskað að umboðsmanni yrðu afhent afrit af öllum gögnum málsins og að ráðuneytið veitti tilteknar upplýsingar og skýringar. Í svarbréfi ráðuneytisins 22. febrúar sl. kom fram að ráðuneytið hefði ákveðið að endurupptaka málið og óska eftir því að A legði fram nánar tiltekin gögn áður en óskað yrði eftir nýrri umsögn gjafsóknarnefndar. Bréfinu fylgdi afrit af tilkynningu ráðuneytisins þann sama dag til yðar þar um.

Með vísan til framangreinds eru ekki efni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég því athugun minni á málinu því lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ef þér teljið umbjóðanda yðar enn rangsleitni beittan að fenginni nýrri niðurstöðu ráðuneytisins getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.