Þinglýsingar

(Mál nr. 12683/2024)

Kvartað var yfir sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna þinglýsingar kaupsamnings.  

Ekki varð annað ráðið en kvörtunin lyti að sömu atriðum og fyrri kvartanir til umboðsmanns. Líkt og í fyrri bréfum var viðkomandi því bent á að leita til dómstóla skv. lögum þar um.

     

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. apríl 2024.

   

  

Vísað er til kvörtunar yðar 4. apríl sl. sem beinist að embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Af kvörtuninni verður ekki annað ráðið en að hún lúti að sömu atriðum og fyrri kvartanir yðar til umboðsmanns, sem hlutu málsnúmerin 11991/2022, 12152/2023 og 12399/2023 og var lokið með bréfum til yðar 11. janúar, 27. apríl og 17. október 2023, þ.e. að þér teljið óheimilt að þinglýsa kaupsamningum vegna fjölbýlishússins að [...] fyrr en ný eignaskiptayfirlýsing hefur verið gerð. Með kvörtun yðar nú fylgdi afrit af tölvubréfi frá starfsmanni sýslumannsins 4. apríl sl. þar sem m.a. kemur fram að ekki verði séð á hvaða forsendum embættið myndi neita því að þinglýsa kaupsamningi á eignina. Kvörtun yðar fylgdi einnig afrit tölvubréfs starfsmanns embættisins til yðar síðar sama dag en þar kemur fram að í því skjali sem þér hafið vísað til í samskiptum yðar við embættið sé kveðið á um að kaupsamningi hafi verið þinglýst með athugasemd um að afsali yrði ekki þinglýst fyrr en nýrri eignaskiptayfirlýsingu hefði verið þinglýst. Sé þetta í samræmi við verklag embættisins og að mál yðar verði afgreitt með sama hætti.

Líkt og fram kom í framangreindum bréfum umboðsmanns til yðar segir í 1. mgr. 3. gr. þinglýsingalaga, nr. 39/1978, að bera megi úrlausn þinglýsingarstjóra um þinglýsingu undir héraðsdómara með nánar tilgreindum hætti. Ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að samkvæmt c-lið 4. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns ekki til ákvarðana og annarra athafna stjórnvalda, þegar samkvæmt beinum lagafyrirmælum er ætlast til þess að menn leiti leiðréttingar með málskoti til dómstóla. Af þessum sökum falla kvartanir, sem lúta að ágreiningi um þinglýsingar, almennt utan starfssviðs umboðsmanns og eru því að jafnaði ekki skilyrði að lögum fyrir umboðsmann til að fjalla um slík mál. Í ljósi framangreinds verður ekki séð að í máli yðar liggi fyrir ákvarðanir, athafnir eða athafnaleysi af hálfu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem falla undir starfssvið umboðsmanns. Brestur því lagaskilyrði til þess að ég geti fjallað frekar um kvörtun yðar.

Með vísan til framangreinds læt ég umfjöllun minni um kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.