Kvartað var yfir barnaverndarþjónustu Kópavogs vegna ákvörðunar hennar um að beita neyðarráðstöfun samkvæmt barnaverndarlögum.
Ekki varð annað ráðið en málið væri enn til meðferðar barnaverndar og ekki lægi fyrir endanleg niðurstað innan stjórnsýslunnar um ráðstöfunina. Að svo stöddu voru því ekki skilyrði til að taka kvörtunina til meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. júní 2024.
Vísað er til kvörtunar yðar 18. júní sl. sem þér beinið að barnaverndarþjónustu Kópavogs og lýtur að ákvörðun hennar 9. þess mánaðar um beitingu neyðarráðstöfunar samkvæmt 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fólust ráðstafanir barnaverndar í því að barn yðar var tekið úr umsjá forsjáraðila og kyrrsett á vegum barnaverndaryfirvalda í allt að 14 daga.
Í tilefni af kvörtun yðar skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinni í málinu. Ákvæðið byggist á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun. Af þessu leiðir enn fremur að umboðsmaður fjallar að jafnaði ekki um mál sem eru til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að í 1. mgr. 31. gr. barnaverndarlaga er kveðið á um að ef vinda þurfi bráðan bug að ráðstöfun geti starfsfólk barnaverndarþjónustu sem fari með fullnaðarafgreiðslu mála samkvæmt lögunum, án undangenginnar málsmeðferðar samkvæmt VIII. kafla þeirra, framkvæmt hana. Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar skal barnaverndarþjónusta án tafa taka málið til meðferðar. Þar segir einnig að innan 14 daga frá því að ákvörðun um neyðarráðstöfun sé tekin skuli taka ákvörðun eða kveða upp úrskurð, eftir atvikum með aðkomu umdæmisráðs barnaverndar, um áframhaldandi ráðstöfun, að öðrum kosti falli ákvörðun samkvæmt 1. mgr. úr gildi.
Í bréfi barnaverndar kom fram að málið yrði tekið fyrir á fundi 18. júní og að forsjáraðilum væri boðið að mæta á þann fund. Þá verður ráðið af tölvubréfasamskiptum yðar við barnavernd að þér hafið verið boðuð til fundar 13. sama mánaðar. Af gögnum málsins verður þó ekki annað séð en að málið sé enn til meðferðar hjá barnavernd og ekki liggi fyrir endanleg niðurstaða innan stjórnsýslunnar um þá ráðstöfun sem hér er um að ræða. Brestur því lagaskilyrði til þess að kvörtun yðar verði tekin til meðferðar að svo stöddu. Teljið þér yður enn rangsleitni beitta, að fenginni endanlegri niðurstöðu málsins, getið þér leitað til umboðsmanns á nýjan leik. Verður þá tekin frekari afstaða til þess hvort og þá að hvaða marki málið getur komið til athugunar af hálfu umboðsmanns.
Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.