Kvartað var yfir því að Útlendingastofnun hefði ekki afgreitt umsókn frá því í júlí um framlengingu á dvalarleyfi.
Útlendingastofnun afgreiddi umsóknina og veitti dvalarleyfi í byrjun desember og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. desember 2024.
Vísað er til kvörtunar þinnar 22. nóvember sl. sem lýtur að því að Útlendingastofnun hafi enn ekki afgreitt umsókn þína 14. júlí sl. um framlengingu á dvalarleyfi.
Í tilefni af kvörtuninni var Útlendingastofnun ritað bréf 3. desember sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvort stofnunin hefði til meðferðar umsókn þína og þá hvað liði meðferð og afgreiðslu hennar. Í svari Útlendingastofnunar 19. desember sl. segir m.a. að umsóknin hafi verið tekin til vinnslu 4. september sl. og stofnunin hafi síðan átt í tilteknum samskiptum við þig vegna fylgigagna með henni. Í kjölfarið hafi umsóknin verið afgreidd 3. desember sl. og þér veitt dvalarleyfi.
Þar sem kvörtun þín lýtur að töfum á meðferð umsóknar þinnar um framlengingu á dvalarleyfi og í ljósi þess að nú liggur fyrir að afgreiðslu hennar er lokið tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því umfjöllun minni um málið með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.