Kvartað var yfir synjun Vinnumálastofnunar um tímabundið atvinnuleyfi fyrir erlendan ríkisborgara.
Ekki varð ráðið að þessi niðurstaða hefði verið kærð til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Að svo stöddu voru því ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. janúar 2025.
Vísað er til kvörtunar þinnar 7. janúar sl. fyrir hönd A ehf. Kvörtunin lýtur að því að umsókn félagsins til Vinnumálastofnunar um tímabundið atvinnuleyfi fyrir tilgreindan kínverskan ríkisborgara var synjað 4. september sl.
Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en það hefur fellt úrskurð sinni í málinu. Ákvæðið byggist á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli sjálf fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum, sem hugsanlega er ekki í samræmi við lög, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun. Af því leiðir að ekki er gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en það hefur endanlega verið til lykta leitt í stjórnsýslunni. Af gögnum, sem fylgdu kvörtun þinni, verður ekki ráðið að þú hafir kært framangreinda ákvörðun Vinnumálstofnunar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins svo sem leiðbeint var um heimild til í niðurlagi ákvörðunarinnar. Af þeim sökum brestur lagaskilyrði til þess að kvörtun þín verði tekin til meðferðar að svo stöddu.
Með vísan til framangreinds lýk ég umfjöllun minni um kvörtun þína, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Ef þú ákveður að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og þú telur félagið A ehf. enn rangsleitni beitt að fenginni niðurstöðu þess getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.