Lögreglu- og sakamál. Meðferð ákæruvalds. Haldlagning. Starfssvið.

(Mál nr. 535/2025)

A kvartaði fyrir hönd félagsins B yfir tilgreindum atriðum varðandi málsmeðferð lögreglustjórans X í tilefni haldlagningar á munum. Kvörtunin laut meðal annars að því að erindum væri ekki svarað og A ekki veittar upplýsingar.

Að fengnu svari lögreglustjóra þar sem fram kom að erindi A hefði nú verið svarað taldi umboðsmaður ekki tilefni til að kanna þann þátt málsins frekar. Með vísan til yfirstjórnar- og eftirlitshlutverks ríkissaksóknara sem æðsta handhafa ákæruvalds var talið að rétt væri að A leitaði með aðra þætti kvörtunar sinnar til hans áður en kvartað væri til umboðsmanns. 

Umboðsmaður taldi rétt að vekja athygli A á því að eiganda eða vörsluhafa væri unnt að bera réttmæti haldlagningar undir dómara. Í því samhengi benti umboðsmaður jafnframt á að í ljósi lagafyrirmæla þess efnis félli það utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um hvort aflétta skyldi haldi.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. janúar 2026.