Ábúð. Endurupptaka. Ekki ástæða til aðgerða

(Mál nr. 43/2026)

Kvartað var yfir ákvörðun yfirmatsnefndar samkvæmt ábúðarlögum um að verða ekki við beiðni jarðareiganda um endurskoðun á yfirmatsgerð hennar vegna ábúðarloka á jörð.

Að virtum þeim tíma sem liðinn var frá ábúðarlokunum sem og frá því að yfirmatsgerðin var upphaflega látin í té taldi umboðsmaður ekki líkur á því að frekari athugun hennar á málinu myndi leiða til þess að hún hefði forsendur til að beina tilmælum til yfirmatsnefndarinnar um að taka beiðnina til nýrrar meðferðar. Þá leit umboðsmaður til þess að kvartandi hefði nú höfðað dómsmál í tengslum við sama mál þar sem ætla mætti að reyndi á sambærileg álitaefni og kvörtunin beinist að. Lauk umboðsmaður því athugun sinni á kvörtuninni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. mars 2026.