Frumkvæðisathugun. Meðferð ákæruvalds. Stjórnaldsfyrirmæli. Lögreglu- og sakamál. Aðgangur að gögnum og upplýsingum.

(Mál nr. F7/2026)

Umboðsmaður tók til athugunar hvernig endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið miðaði. Tilefni athugunarinnar var að í kjölfar fyrri frumkvæðisathugunar hafði ríkissaksóknari upplýst að fyrirmælin hefðu verið tekin til endurskoðunar. Umboðsmanni bárust hins vegar ábendingar um að endurskoðun fyrirmælanna væri ekki lokið og af þeim sökum hefði dregist að afgreiða beiðnir um gögn. 

Í svari ríkissaksóknara við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að fyrir liggi drög að endurskoðuðum fyrirmælum, sem fylgdu hjálögð svari hans, og fyrirhugað væri að gefa þau út á næstu vikum. Meðal annars hefði tafið endurskoðunina að réttarreglur á þessu sviði séu flóknar og jafnfrramt reyni á túlkun ákvæða ólíkra laga og ýmissa hugtaka. Ríkissaksóknari upplýsti að meðferð kærumála hjá embætti hans hefði ekki tafist sökum þess að endurskoðun væri ólokið en upplýsti að honum væri þó kunnugt um að ein gagnabeiðni hjá héraðssaksóknara hefði verið í biðstöðu af þeim sökum.

Einkum með vísan til þess að útgáfa fyrirmælanna væri á næsta leiti taldi umboðsmaður ekki tilefni til að halda athugun sinni áfram. Þess var þó óskað að ríkissaksóknari gerði umboðsmanni grein fyrir því þegar fyrirmælin yrðu gefin út svo og ef kæmi til frekari tafa þar á.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.