Skattar og gjöld. Álagning stöðubrots. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 457/2026)

A kvartaði yfir staðfestingu Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á ákvörðun um álagningu gjalds vegna stöðvunarbrots þar sem bifreið hafði verið lagt í merktu stæði ætluðu rafhleðslu.

Taldi A að Bílastæðasjóður hefði fallið frá gjaldinu og tekið málið síðan upp aftur og hafnað endurupptöku. Af gögnum frá Bílastæðasjóði mátti ráða að um tvö mismunandi mál væri að ræða þar sem fallið var frá gjaldi í öðru þeirra og laut athugun umboðsmanns því einungis að álagningu gjaldsins sem ekki var fallið frá. Eftir að hafa kynnt sér gögn málsins, þ.á m. ljósmyndir af vettvangi þar sem sjá mátti umferðarmerki 553.4 sem gefur til kynna að bifreiðastæði sé ætlað bifreiðum til rafhleðslu, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvörðun Bílastæðasjóðs.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.