Kvartað var yfir ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um synjun á beiðni um endurskoðun á álagningu stöðvunarbrotsgjalds vegna stöðvunarbrots þar sem bifreið hefði verið lagt í merktu stæði ætluðu rafhleðslu.
Að virtum gögnum málsins, sem vörpuðu ljósi á aðstæður á vettvangi, varð ekki séð að bifreiðinni hefði verið lagt í stæðið meðan á rafhleðslu stóð. Að því virtu og eftir að hafa kynnt sér gögn málsins að öðru leyti, þ. á m. ljósmyndir af vettvangi, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvörðun Bílastæðasjóðs.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.