A leitaði til umboðsmanns vegna upplýsinga þess efnis að leigusamningi félagslegs húsnæðis viðkomandi yrði sagt upp ef afplánun drægist umfram ákveðið tímamark.
Í svörum Reykjavíkurborgar kom fram að upplýsingarnar hefðu verið veittar fyrir mistök og ekki stæði til að segja umræddum samningi upp á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Í ljósi þessa taldi umboðsmaður ekki ástæðu til þess að aðhafast frekar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.