Skattar og gjöld. Álagning stöðubrotsgjalds. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 241/2026)

A kvartaði yfir ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um álagningu aukastöðugjalds en hann bar því fyrir sig að hafa greitt innan þess tíma sem ökutækinu var lagt.

Af gögnum málsins varð ekki annað ráðið en að ekki hefði verið greitt fyrir bílastæðið fyrr en eftir að álagning aukastöðugjaldsins fór fram. Taldi umboðsmaður því ekki efni til að gera athugasemd við ákvörðun Bílastæðasjóðs.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.