Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 469/2026)

A kvartaði yfir því að meðferð erindis til endurskoðendaráðs hefði dregist og erindum um framvindu málsins hefði ekki verið svarað.

Í svari endurskoðendaráðs við fyrirspurn umboðsmanns um málið kom fram að erindið hefði upphaflega borist öðru stjórnvaldi en vegna mistaka hefði framsending til endurskoðendaráðs tafist. Jafnframt kom fram að málið yrði tekið fyrir á næsta fundi ráðsins og ráðgert væri að svara erindinu innan fárra daga frá honum. Í ljósi upplýsinga um að erindið yrði afgreitt innan skamms taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 8. september 2026.