Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 383/2026 og 508/2026)

A kvartaði yfir ákvörðunum Persónuverndar að taka ekki kvartanir hans til stofnunarinnar til frekari rannsóknar

Umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að líta svo á að mat Persónuverndar hefði verið bersýnilega óforsvaranlegt eða að öðru leyti í ósamræmi við lög þannig að efni væru til að gera athugasemdir við niðurstöður hennar. Hafði umboðsmaður þar meðal annars í huga það svigrúm sem játa yrði Persónuvernd að þessu leyti.

   

Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 15. september 2026.