A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála sem staðfesti ákvörðun Byggðastofnunar um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunar A yfir starfsháttum Íslandspósts ohf. í tengslum við sendingu hans á pakka frá íslandi til X.
Umboðsmaður taldi eftir athugun sína á úrskurði nefndarinnar og öðrum gögnum að kvörtunin gæfi ekki tilefni til þess taka hana til nánari athugunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.