A kvartaði yfir því að lyfjaskírteini vegna tiltekins lyfs hefði ekki verið endurnýjað og hann fengið tiltekið lyf ekki afgreitt án þess en öðru máli gegndi um þá sem ekki væru sjúkratryggðir hérlendis. Óskað var eftir athugun á því hvort Sjúkratryggingar mismunuðu fólki eftir búsetu að þessu leyti.
Þar sem af kvörtuninni varð ráðið að umsókn um útgáfu lyfjaskírteinisins væri enn í vinnslu hjá Sjúkratryggingum voru ekki uppfyllt skilyrði til að umboðsmaður gæti tekið málsmeðferðina til skoðunar. Þá vakti umboðsmaður athygli á því að sá hluti kvörtunarinnar sem fól í sér almenna ábendingu, þ.e. að lyfjaskírteini væri forsenda þess að fá viðkomandi lyf afgreitt í tilviki einstaklinga sem væru sjúkratryggðir hérlendis, væri ekki ákvörðun á valdsviði Sjúkratrygginga heldur almennt skilyrði samkvæmt reglugerð sem heilbrigðisráðherra hefði sett.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.