Skattar og gjöld. Sveitarfélög. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 504/2026)

Kvartað var yfir gjaldtöku Ísafjarðarbæjar vegna endurnýjunar lóðaleigusamnings.

Þar sem hvorki lá fyrir afstaða sveitarfélagsins né eftir atvikum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála eða innviðaráðherra til málsins voru ekki skilyrði að svo stöddu til að umboðsmaður fjallaði um það.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.