A kvartaði yfir málsmeðferð Tryggingastofnunar í tengslum við rannsókn vegna greiðslu félagslegs viðbótarstuðnings. Laut kvörtunin einkum að því að rangar dagsetningar hefðu verið lagðar til grundvallar í bréfi til A og að stofnunin hefði hótað því að krefja hana um endurgreiðslu.
Tryggingastofnun upplýsti umboðsmann um að dagsetningum hefði verið breytt og að komist hefði verið að þeirri niðurstöðu í málinu að A hefði þegið viðbótargreiðslur á óréttmætum forsendum. Þar sem ákvörðunin Tryggingastofnunar um endurgreiðslu hafði ekki verið borin undir úrskurðarnefnd velferðarmála voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari athugunar. Þrátt fyrir lyktir málsins varð bréf Tryggingastofnunar til A umboðsmanni tilefni til að beina því til stofnunarinnar að endurskoða kæruleiðbeiningar sínar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 29. september 2026.