Kvörtun og afmörkun athugunar
Vísað er til kvörtunar A yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála [...] í máli nr. [...], þar sem staðfest var ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja henni um heimilisuppbót samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, og 1. tölulið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. Í kvörtuninni er byggt á því að leyst hafi verið úr umsókninni á röngum lagagrundvelli auk þess sem annmarkar hafi verið á meðferð málsins hjá Tryggingastofnun.
Að virtu efni kvörtunar og öðrum gögnum málsins hef ég ákveðið að afmarka athugun mína við það hvort úrskurður úrskurðarnefndarinnar um að staðfesta synjun á umsókn A um heimilisuppbót hafi verið í samræmi við lög.
Málavextir
Af gögnum málsins verður ráðið að þegar A sótti um heimilisuppbót til Tryggingastofnunar 12. ágúst 2024 hafi hún haldið heimili í hjólhýsi staðsettu á Sævarhöfða í Reykjavík, á svæði á vegum Reykjavíkurborgar ætluðu hjólhýsum. Með bréfi 20. sama mánaðar óskaði stofnunin eftir upplýsingum um hvort veitt væri þjónusta þar sem hjólhýsið væri staðsett. Með þjónustu væri átt við hvort aðgangur væri að sameiginlegu eldhúsi og baðaðstöðu. Í svarbréfi 6. september sama ár kom fram að í hjólhýsinu væri bæði eldunar- og salernisaðstaða. Í tilefni af umsókninni óskaði Tryggingastofnun jafnframt eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg um aðstæður á Sævarhöfða og greiðslur íbúa fyrir að hafa aðstöðu á svæðinu.
Tryggingastofnun synjaði umsókninni 7. nóvember 2024. Í ákvörðun stofnunarinnar kom fram að samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hefðu íbúar á Sævarhöfða aðgang að snyrtingu, þvottavél og rafmagni fyrir hjólhýsin. Ekki væri greidd leiga fyrir afnot af svæðinu en greitt væri fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli. Því næst sagði svo:
Samkvæmt 8. gr. laga um félagslegt húsnæði er heimilt að greiða heimilisuppbót til einhleyps lífeyrisþega sem býr einn og er einn um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað. TR telur að samkvæmt framangreindu sé um að ræða fjárhagslegt hagræði af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu, þar sem um er að ræða sameiginlegan aðgang að snyrtingu og þvottavél, jafnvel þótt einnig sé aðstaða inn í hjólhýsi.
Synjunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála 18. desember 2024. Með úrskurði [...] í máli nr. [...] staðfesti nefndin niðurstöðu Tryggingastofnunar. Í úrskurðinum segir meðal annars:
Samkvæmt gögnum málsins er lögheimili kæranda skráð ótilgreint í þjóðskrá. Óumdeilt er að kærandi býr í hjólhýsinu sínu og að það er staðsett við Sævarhöfða í Reykjavík. Þá liggja fyrir upplýsingar í gögnum málsins um að íbúar á svæðinu hafi aðgang að snyrtingu, þvottavél og rafmagni fyrir hýsi sín og að þeir borgi fyrir rafmagnsnotkun sína en ekkert fyrir aðstöðuna að öðru leyti. Úrskurðarnefnd telur að þar sem kærandi hafi afnot af sameiginlegri aðstöðu með öðrum og þurfi ekki að greiða fyrir það hafi hún fjárhagslegt hagræði af samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga um félagslega aðstoð og 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1200/2018. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar að kærandi uppfylli ekki skilyrði fyrir greiðslu heimilisuppbótar samkvæmt 8. gr. laga um félagslega aðstoð.
Skýringar úrskurðarnefndar velferðarmála
Í tilefni af kvörtuninni var úrskurðarnefnd velferðarmála ritað bréf 19. maí 2025 þar sem óskað var eftir öllum gögnum málsins og bárust þau 23. þess mánaðar. Með bréfi 9. október 2025 óskaði umboðsmaður meðal annars eftir að úrskurðarnefndin skýrði nánar þá afstöðu að aðgangur að snyrtingu og þvottavél á því svæði þar sem hjólhýsið er staðsett feli í sér fjárhagslegt hagræði af sambýli eða samlögum við aðra, þannig að A yrði ekki talin vera ein um heimilisrekstur.
Í bréfi nefndarinnar 6. nóvember 2025 kemur fram að nefndin meti sjálfstætt í hverju tilviki fyrir sig hvort fjárhagslegt hagræði af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað sé til staðar. Í máli A hafi nefndin horft til þess að aðgangur að snyrtingu og þvottavél teldist óneitanlega vera húsnæðisaðstaða sem að öðrum kosti þyrfti að greiða fyrir. Í bréfinu segir svo:
Þrátt fyrir að aðstæður að Sævarhöfða hafi sannarlega verið bágbornar taldi úrskurðarnefndin að ekki yrði hjá því litið að [A] þurfti ekki að greiða fyrir aðstöðuna sem að mati nefndarinnar fól í sér fjárhagslegt hagræði. Með hliðsjón af framangreindu var það því niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að hún hefði fjárhagslegt hagræði af samlögum við aðrar um húsnæðisaðstöðu sem girti fyrir rétt hennar til heimilisuppbótar.
Athugasemdir A við skýringar úrskurðarnefndarinnar bárust 21. nóvember 2025.
Athugun umboðsmanns
1 Lagagrundvöllur
Um heimilisuppbót er fjallað í 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. er heimilt að greiða heimilisuppbót til einhleyps greiðsluþega sem býr einn og er einn um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað. Í 2.-4. mgr. 8. gr. er mælt fyrir um fjárhæð heimilisuppbótar og skerðingu sem hún sætir vegna tekna og búsetu greiðsluþega.
Með stoð í meðal annars 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007 setti ráðherra reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, og var sú reglugerð í gildi þegar ákvörðun var tekin í málinu. Í 7. gr. þeirrar reglugerðar er nánar fjallað um fjárhagslegt hagræði. Í 1. mgr. er tekið fram að einstaklingar sem eru skráðir með sama lögheimili og eru eldri en 18 ára teljist að jafnaði hafa fjárhagslegt hagræði af sambýli eða samlögum hver við annan. Enn fremur að heimilisuppbót verði ekki greidd til aðila sem svo er ástatt um sem lýst er í 1. til 3. tölulið ákvæðisins. Í 1. tölulið., sem vísað er til í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, segir svo:
Ef umsækjandi nýtur fjárhagslegs hagræðis af því að hafa sameiginlega aðstöðu varðandi fæði eða húsnæði, t.d. sambýli á vegum félagasamtaka, ríkis og sveitarfélaga.
2 Fjárhagslegt hagræði af samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu
Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar skal öllum sem þess þurfa tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika. Á grundvelli þess ákvæðis hefur með almennum lögum, þar á meðal lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, verið komið á fót velferðarkerfi til að styðja við þá sem standa höllum fæti fjárhagslega og félagslega. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 99/2007 er heimilt að veita lífeyrisþega heimilisuppbót þegar um er að ræða einhleypan einstakling sem býr einn og er einn um heimilisrekstur. Heimilisuppbót verður á hinn bóginn ekki greidd njóti viðkomandi fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað. Skilyrði ákvæðisins snúa þannig ekki aðeins að fjölskylduhögum lífeyrisþega heldur skal meta í hverju og einu tilviki hvort viðkomandi njóti góðs af því að aðrir leggi eitthvað til reksturs heimilis eða húsnæðis, sbr. dóm Hæstaréttar 6. mars 2024 í máli nr. 30/2023. Löggjafinn hefur því litið svo á að ef lífeyrisþegi nýtur fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað hafi hann ekki þörf fyrir þann viðbótarfjárstuðning sem heimilisuppbótinni er ætlað að vera handa þeim sem reka heimili einir.
Þótt hjólhýsi A hafi verið útbúið með snyrtingu og eldunaraðstöðu liggur fyrir að hún naut að auki endurgjaldslauss aðgangs að þvottavél og snyrtiaðstöðu á Sævarhöfða, sem ætlað er til sameiginlegra afnota fyrir íbúa svæðisins. Að þessu virtu tel ég ekki forsendur til að gera athugasemdir við þá niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála að A hafi haft fjárhagslegt hagræði af samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu og því ekki uppfyllt skilyrði heimilisuppbótar samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um félagslega aðstoð og 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1200/2018.
Niðurstaða
Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég athugun minni á kvörtuninni, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.