A kvartaði yfir ákvörðun Fjölmiðlanefndar um að aðhafast ekki í tilefni af kvörtun A yfir nánar tilgreindum umfjöllunum sem birtust á netmiðlunum Vísir.is og Mbl.is. Taldi A að með þeim hefðu viðkomandi fjölmiðlar brotið gegn skyldum sínum samkvæmt fjölmiðlalögum til að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og kappkosta að skaðlegt efni sé ekki gert aðgengilegt eða því miðlað til barna.
Að lokinni athugun á ákvörðun Fjölmiðlanefndar taldi umboðsmaður að kvörtunin gæfi ekki tilefni til þess taka málið til frekari athugunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. október 2026.