A ehf. leitað til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir ákvörðun mennta- og barnamálaráðuneytisins um að úthluta ekki styrkjum til rekstur bóklegs hluta flugnáms á grundvelli auglýsingar og birta þess í stað nýja auglýsingu með þrengri skilyrðum. Í síðari auglýsingunni var það meðal annars gert að skilyrði að umsækjendur rækju flugskóla þar sem boðið væri upp á bóklega og verklega hluta námsins hér á landi. Taldi A ehf. að í því fælist ólömæt mismunun sem jafnframt bryti gegn grunnreglum EES-samningsins.
Umboðsmaður taldi að við mat á lögmæti skilyrðisins og þýðingu þess fyrir frekari athugun sína yrði ekki litið framhjá því að ráðuneytið hefði fallist á athugasemdir A ehf. um að það væri ekki í samræmi við reglur EES-samningsins og að skilyrðið hefði ekki komið niður á umsókn félagsins. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til þess að taka kvörtunin til nánari athugunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréf 12 október 2026.