Svör við erindum.

(Mál nr. 6393/2011)

A kvartaði yfir því að Orkustofnun hefði ekki svarað erindi sem iðnaðarráðuneytið framsendi til Orkustofnunar með bréfi, dags. 9. mars 2011. Í svarbréfi Orkustofnunar til umboðsmanns í tilefni af fyrirspurn hans um málið kom fram að erindinu hefði nú verið svarað. Þar sem kvörtun A laut að töfum taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar og lauk meðferð sinni á málinu með bréfi, dags. 17. maí 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.