Svör við erindum.

(Mál nr. 6344/2011)

A kvartaði yfir því að hafa ekki fengið svör við erindi sínu, dags. 4. janúar 2011, til úrskurðarnefndar lögmanna. Í framhaldi af fyrirspurn umboðsmanns barst honum afrit af svari úrskurðarnefndarinnar til A, dags. 23. maí 2011. Þar sem erindi A hafði verið svarað ákvað umboðsmaður að ljúka umfjöllun sinni um kvörtun A með bréfi, dags. 24. maí 2011, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.