Svör við erindum.

(Mál nr. 6456/2011)

Hinn 24. maí 2011 barst umboðsmanni Alþingis kvörtun frá A yfir því að innanríkisráðuneytið hefði ekki svarað tveimur skriflegum fyrirspurnum hans um uppgjörstölur vegna jarðgangagerðar, dags. 23. og 28. apríl 2011. Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 23. júní 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Í skýringum ráðuneytisins kom fram að erindi A hefðu verið til meðferðar í ráðuneytinu og fyrirspurnunum hefði nú verið svarað. Umboðsmaður lauk því athugun sinni.